Viðskipti innlent

Hjör­var Blær tekur við sem for­stöðu­maður út­flutnings hjá Eim­skip

Atli Ísleifsson skrifar
Hjörvar Blær Guðmundsson.
Hjörvar Blær Guðmundsson. Eimskip

Hjörvar Blær Guðmundsson hefur verið ráðinn forstöðumaður útflutningsdeildar hjá Eimskip.

Í tilkynningu kemur fram að Hjörvar hafi reynslu og góða tengingu úr sjávarútvegi og hafi starfað hjá útflutningsdeild Eimskips frá árinu 2021. Hann sé 24 ára gamall og með BSc í hagfræði frá Háskóla Íslands.

Haft er eftir Birni Einarssyni, framkvæmdastjóra Sölu og viðskiptastýringar hjá Eimskip, að það sé alltaf gaman að sjá fólk þróast í starfi. 

„Hjörvar hefur vaxið mikið í starfi síðustu misseri og mjög vel til þess fallinn að taka við nýju leiðtogahlutverki innan Eimskips. Útflutningur frá Íslandi er ein af lykilstoðum samfélagsins og þar er sjávarútvegurinn lykilbreyta. Hlutverk Hjörvars verður að leiða reynslumikinn hóp starfsfólks og halda áfram að þróa og viðhalda okkar öflugu þjónustu og flutningalausnum við viðskiptavini félagsins,“ segir Björn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×