Lífið samstarf

Sjávarþang fyrir þyrst hár

CU2
Þurrt hár er merki um að bregðast þurfi við með góðum hárvörum. Deep Sea Hydration frá John Frieda bindur raka innan í hverju hári.
Þurrt hár er merki um að bregðast þurfi við með góðum hárvörum. Deep Sea Hydration frá John Frieda bindur raka innan í hverju hári.

Þurrt og þyrst hár? Þetta er oft merki um heilsuleysi hársins okkar en sem betur fer ekki flókið að bæta úr þessu eyðimerkurástandi á hausnum á þér! Sérstaklega þegar vörur á borð við nýju Deep Sea Hydration línuna frá John Frieda eru við höndina.

Deep Sea Hydration línan samanstendur af sjampói, næringu og djúpnæringarmaska

Formúlan í Deep Sea Hydration línunni byggir á sérþróaðri SILK-Hydration-tækni sem gefur hárinu raka og næringu frá innviðum þess útávið. Þessi tækni bindur raka innan í hverju hári ásamt því að mýkja ysta lag þess með næringar- og andoxunarríku þangi úr hafinu. 

Djúpnæringarmaski - Uppgötvaðu hárið þitt í sínu besta formi, stútfullt af raka og næringu með Deep Sea Hydration línunni

Auk þess hefur John Frieda þróað blöndu efna sem líkir eftir mýkingareiginleikum sílikons án þess að þurfa að nota sílikon í vörurnar. Ennfremur eru vörurnar í línunni vegan, cruelty free og innihalda ekki súlföt.

Niðurstaðan? Heilbrigt og vel nært hár sem er enn mýkra strax eftir fyrsta þvott!

Hár og sjávar viðgerð

Það er ekki bara hárið þitt sem nýtur góðs af. John Frieda hefur í samstarfi við 4Ocean samtökin náð að tryggja að Deep Sea Hydration, sem er vottað “Clean-up” samstarfsvörumerki en það þýðir að fyrir hvert pund af plasti sem notað er í umbúðir varanna, mun 4Ocean hreinsa upp sama magn af sjávarplasti.

John Frieda er samstarfi við 4Ocean samtökin um að hreinsa upp plast úr sjó

Deep Sea Hydration línan er m.a. komin í apótek og sérverslanir um allt land.

Klippa: Deep Sea Hydration hárlína frá John Frieda





Fleiri fréttir

Sjá meira


×