Fótbolti

Þórsarar höfðu betur gegn Leikni á heima­velli

Aron Guðmundsson skrifar
Þorlákur Árnason, Þórs Akureyri.
Þorlákur Árnason, Þórs Akureyri. Mynd/Daníel

Þór Akur­eyri vann í dag afar góðan 1-0 sigur á Leikni Reykja­vík í 3.um­ferð Lengju­deildar karla.

Leikið var á Þór­svelli á Akur­eyri en fyrir leik dagsins voru liðin jöfn að stigum, með þrjú stig, eftir fyrstu tvær um­ferðirnar.

Eina mark leiksins leit dagsins ljós strax á 10.mínútu en það skoraði Valdimar Daði Sæ­vars­son.

Sigur Þórs gerir það að verkum að liðið fer upp í 2.sæti Lengju­deildarinnar en þess ber þó að geta að liðin í kring eiga eftir að leika sína leiki í 3.um­ferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×