Körfubolti

Grindavík krækir í fjórða leikmanninn á stuttum tíma

Smári Jökull Jónsson skrifar
Valur Orri er búinn að færa sig um set á Suðurnesjunum.
Valur Orri er búinn að færa sig um set á Suðurnesjunum. Vísir/Bára Dröfn

Valur Orri Valsson hefur skrifað undir samning við körfuknattleiksdeild Grindavíkur og mun leika með félaginu á næstu leiktíð. Valur Orri er fjórði leikmaðurinn sem semur við Grindavík á stuttum tíma.

Grindavíkingar ætla sér greinilega að vera með í baráttunni í Subway-deildinni á næsta tímabili en fyrir skömmu sömdu þeir við Daniel Mortensen, fyrrum leikmann Hauka og Þórs frá Þorlákshöfn, og bandaríska Ungverjann DeAndre Kane sem leikið hefur í sterkum deildum. Í gær var svo sagt frá því að Dedrick Deon Basile myndi leika í gulu næsta vetur en hann hefur spilað með Njarðvík síðustu tvö tímabil við góðan orðstír.

Grindvíkingar eru þó ekki hættir að styrkja sig því nú fyrir skömmu var greint frá því að búið væri að ganga frá samningum við Val Orra Valsson en hann kemur til liðsins frá Keflavík.

Valur Orri hóf feril sinn feril í meistaraflokki aðeins 14 ára gamall og lék í háskólaboltanum í Bandaríkjunum á árunum 2016-2020. Hann hefur leikið með Keflavík síðustu árin og leikur í stöðu leikstjórnanda.

„Við höfum haft augastað á Vali Orra lengi. Þegar hann kom til Íslands úr háskólaboltanum fyrir þremur árum þá höfðum við samband við hann til að heyra hvað hann hafði hugsað sér að gera. Núna er hann mættur og ætlar að sýna okkur og ykkur hversu frábær leikmaður hann er,“ segir Ingibergur Þór Jónasson formaður Körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í tilkynningu sem birt var á stuðningsmannasíðu liðsins nú rétt í þessu.

Grindavík hafnaði í 7. sæti Subway-deildarinnar á tímabilinu sem lýkur í kvöld með úrslitaleik Vals og Tindastóls. Grindavík mætti Njarðvík í 8-liða úrslitum en féll þar úr leik eftir tap í þremur leikjum.

Í yfirlýsingu Grindvíkinga kemur fram að unnið sé dag og nótt að koma með fréttir af kvennaliði félagsins sem hafnaði í 5. sæti Subway-deildarinnar á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×