Atvinnulíf

Breytt viðhorf: Unga fólkið að velja nám á allt annan hátt en áður

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri Iðan fræðsluseturs segir ungt fólk í dag velja sér framhaldsnám með allt öðru hugarfari en áður. Þau séu ekki að velja nám með starfsframa út ævina í huga, heldur því áhugasviði sem er hjá þeim núna. Þá segir Hildur gervigreindina og fleira eiga eftir að breyta miklu um hvernig ungt fólk mun læra í framtíðinni. 
Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri Iðan fræðsluseturs segir ungt fólk í dag velja sér framhaldsnám með allt öðru hugarfari en áður. Þau séu ekki að velja nám með starfsframa út ævina í huga, heldur því áhugasviði sem er hjá þeim núna. Þá segir Hildur gervigreindina og fleira eiga eftir að breyta miklu um hvernig ungt fólk mun læra í framtíðinni.  Vísir/Vilhelm

„Við lifum á mjög merkilegum tímum. Gervigreindin mun til dæmis hafa mikil áhrif á nám og það hvernig fólk mun læra, en við erum ekki enn farin að sjá hvernig,“ segir Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs. Sem meðal annars heldur utan um sveinspróf í iðngreinum.

„Við vitum ekki heldur hvernig unga fólkið mun velja sitt nám í framtíðinni. Ég sé mjög mikinn mun á því hvernig ungt fólk er að velja nám í dag í samanburði við hvað var algengast þegar ég byrjaði að vinna hér árið 2006.“

Alþjóðlegi mannauðsdagurinn er í þessari viku og af því tilefni beinum við sjónum okkar að því hvernig ungt fólk velur nám og leggjum þar sérstaka áherslu á að skoða hvað ungir karlmenn velja að læra.

Breytt hugarfar unga fólksins

Síðustu árin hefur nokkuð verið um það fjallað, að konur hafa verið í miklum meirihluta útskriftarnema úr háskólanámi. Háskólamenntunin hafi hins vegar ekki skilað konum stjórnunarstörfum í samræmi við þann fjölda sem hefur menntað sig.

Þá hefur lengi verið talað um kynjaskiptingu í starfsstéttum þar sem ýmist hallar á konur eða karla.

Iðan fræðslusetur er í eigu Samtaka iðnaðarins, Samiðnar, MATVÍS, Grafíu, FIT, VM, Bílgreinasambandsins, Samtaka ferðaþjónustunnar og Meistarafélags húsasmiða.

„Strákarnir eru langtum fleiri hjá okkur en stelpurnar,“ segir Hildur og vísar þar til iðnmenntunar í þeim atvinnugreinum sem Iðan fræðslusetur starfar fyrir. Strákarnir séu mun fleiri í langflestum greinum. Það séu helst hárgreiðslunámið eða snyrtifræðin þar sem þessi hlutföll snúast við.

Það sem vekur hins vegar athygli mína er hvernig ungt fólk er að velja námið sitt í dag. Því mun fleiri velja til dæmis að fara í stúdentsnám samhliða iðngrein, sem þekktist ekki áður. 

Þetta er vísbending um að ungt fólk líti ekki lengur á nám sem það velur í dag sem ákvörðun fyrir starfsframann út ævina. 

Ungt fólk velur meira í takt við áhuga en ekki endilega framtíðar starf sem muni ekki breytast.“

Hildur segir það menntapólitíska spurningu að velta fyrir sér hvort það ætti að stýra því með hvaða hætti ungt fólk velur að læra út frá því hverju vinnumarkaðurinn kallar eftir. Í dag sé þetta val hvers og eins og ekkert verið að reyna að beina fólki í eitt nám frekar en annað.

Ljóst er að ungir karlmenn velja starfsnám frekar en bóknám því í tölum sem Iðan tók saman fyrir Atvinnulífið má sjá eftirfarandi sundurliðun:

Í framhaldsskólum eru 54% stelpur 46% strákar.

Í almennu bóknámi eru stelpur 55% á móti 45% strákar

Í starfsnámi eru stelpur 32% á móti 68% stráka.

Telur þú að starfsnám henti mögulega ungum karlmönnum betur en bóklegt nám?

„Ég held að það sé mjög erfitt að fullyrða nokkuð um það. Þessar tölur eru samt í samræmi við þá skiptingu sem lengi hefur verið sýnileg í þessum starfsstéttum þar sem iðnaðarstörfin eru frekar karllæg. Ég hef í rauninni meiri áhyggjur af þeim hópi drengja sem eru ekki virkir. Fara ekki í neitt nám heldur sitja heima og ekki í virkni án þess að nokkur gefi þeim gaum. Mitt mat er að þetta sé mjög falinn hópur og mögulega fjölmennur og ég hef áhyggjur af því.“

Telur þú það jákvæða þróun að ungt fólk sé í auknum mæli að klára stúdentinn samhliða iðnmenntun?

„Það nýtist að minnsta kosti oft vel ef fólk síðan velur að fara í frekara nám. Ég nefni sem dæmi verkfræði eða tæknifræði. Nemendur sem þegar hafa lokið iðnnámi eru til dæmis oft með reynslu umfram aðra nemendur af því að handleika þrívíddartæknina,“ segir Hildur en bætir við:

„Ég tel hins vegar of snemmt að segja til um það hverju þessi þróun mun skil inn í framtíðina eða fyrir vinnumarkaðinn. Þetta er þróun sem við erum að upplifa núna, samhliða því að gervigreindin og fleira er að koma meira inn og allt eru þetta breytingar sem þurfa sinn tíma áður en við sjáum hverju þær skila.“

Erum við nálægt því að dekka þarfir vinnumarkaðarins með námsframboði, til dæmis því sem ungir menn helst velja?

Nei það er mjög langur vegur frá því. Atvinnulífið vantar iðnmenntað fólk í nánast öllum tilfellum. Námsframboðið er hins vegar þannig að við erum ekki einu sinni nálægt því að geta boðið ungu fólki það nám sem það vill helst komast í. 

Ég nefni sem dæmi iðnnám fyrir byggingariðnaðinn. Þar eru langir biðlistar eftir því að komast í ákveðnar námsgreinar. Og á meðan þetta er svona, er óhjákvæmilegt fyrir byggingariðnaðinn að flytja inn erlent vinnuafl í stórum stíl.“ 


Tengdar fréttir

Trendin 2023: „Við getum ekki lengur treyst á reynslu fortíðarinnar“

„Við getum ekki lengur treyst á reynslu fortíðarinnar heldur verðum við að horfa til framtíðar og vera tilbúin að bregðast við óþekktri framtíð,“ segir Íris Sigtryggsdóttir stjórnendaráðgjafi hjá Eldar Coaching og stjórnarkona í Mannauði, félagi mannauðsfólks á Íslandi, um áherslur í mannauðsmálum framundan.

Þurfum að breyta stjórnun og skipu­lagi til að halda í rétta starfs­fólkið

„Það er ekki langt síðan að hinn dæmigerði starfsmannastjóri var karlmaður á miðjum aldri með lögfræðimenntun. Í dag eru mannauðsstjórar með mun fjölbreyttari bakgrunn og oft með lengri menntun og meiri krafa gerð til mannauðsfólks hvað varðar samskiptafærni, tilfinningagreind og annarra hæfniþátta sem snúa að mannlegri hegðun,“ segir Sigrún Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×