Formúla 1

Schumacher hafi gert vel í erfiðum aðstæðum | „Án efa haft mikil á­hrif“

Aron Guðmundsson skrifar
Schumacher feðgarnir Michael og Mick
Schumacher feðgarnir Michael og Mick Vísir/Getty

Johnny Her­bert, marg­reyndur fyrrum öku­maður í For­múlu 1, segist finna til með Mick Schumacher sem geti ekki notið leið­sagnar föður síns, For­múlu 1 goð­sagnarinnar Michael Schumacher, á sínum eigin öku­manns­ferli í móta­röðinni.

Her­bert ók í For­múlu 1 yfir ellefu ára tíma­bil frá árinu 1989 til ársins 2000. Eftir að ferlinum lauk hefur hann starfað sem sér­fræðingur í sjón­varpi í kringum móta­röðina, meðal annars fyrir Sky Sports.

Í við­tali á dögunum var Her­bert spurður út í Mick Schumacher, sem er nú vara­öku­maður Mercedes í For­múlu 1, en sá er sonur sjö­falda heims­meistarans Michael Schumacher sem er af mörgum talinn besti For­múlu 1 öku­maður allra tíma.

„Án efa haft mikil áhrif“

Mick hefur þurft að feta sinn feril í móta­röðinni án leið­sagnar föður síns en Michael lenti í al­var­legu skíða­slysi í Frönsku ölpunum árið 2013, lítið hefur spurst um líðan hans síðan þá.

Schumacher-fjöl­skyldan hefur virt þá ósk Michaels, sem hann við­hafði á sínum öku­manns­ferli, að einka­lífi fjöl­skyldunnar skyldi haldið utan kast­ljóss fjöl­miðla.

„Á­stand Michael Schumacher hefur án efa haft mikil á­hrif á Mick,“ lét Johnny Her­bert hafa eftir sér í við­tali á dögunum. „Þetta getur ekki hafa verið auð­velt fyrir öku­manninn unga sökum þess hverju faðir hans náði að af­reka.“

Mick þreytti frum­raun sína sem aðal­öku­maður í For­múlu 1 tíma­bilið 2021 hjá banda­ríska liðinu Haas. Hann ók hjá liðinu yfir tveggja tíma­bila skeið og var um leið hluti af akademíu Ferrari, liðinu sem faðir hans vann sína stærstu sigra hjá.

Var látinn taka poka sinn

Mick bar höfuð og herðar yfir liðs­fé­lagann sinn, Nikita Mazepin, tíma­bilið 2021 en laut í lægra haldi fyrir Kevin Magnus­sen, sem tók sæti Mazepin, tíma­bilið 2022.

Í kjöl­farið á­kvað Haas að binda enda á sam­starf sitt við Schumacher.

„Hann var mikið í kringum föður sinn þegar að hann var yngri en svo getur faðir hans ekki fylgt honum í gegnum hans eigin feril. Það hafa, að sjálf­sögðu, margir rétt Mick hjálpar­hönd á þessum tíma en hann er nú í stöðu þar sem að hann þráir hjálp frá föður sínum.“

Her­bert segir Mick hins vegar hafa staðið sig afar vel í þessum krefjandi að­stæðum.

„Hann hefur fengið mikla at­hygli sökum þess hver hann er og hvaða nafn hann ber. Það fylgja Schumacher nafninu á­kveðnar væntingar og pressa í For­múlu 1.

Hann náði ekki að skapa sér það tæki­færi að halda á­fram sem aðal­öku­maður í For­múlu 1 en hann er enn í séns á að snúa aftur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×