Fimmtán íslensk mörk dugðu ekki til Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. maí 2023 17:53 Janus Daði Smárason skoraði sex mörk fyrir Kolstad í dag. Kosltad Janus Daði Smárason, Sigvaldi Björn Guðjónsson og félagar þeirra í norska deildarmeistaraliðinu Kolstad máttu þola súrt eins marks tap er liðið heimsótti Runar í öðrum leik liðanna í undanúrslitum um Noregsmeistaratitilinn í dag, 37-36.
Kolstad vann fyrsta leik liðanna nokkuð örugglega, 28-22, og bjuggust líklega flestir við því að það sama yrði uppi á teningnum í dag. Það var þó nokkuð ljóst frá upphafi leiks að heimamenn í Runar ætluðu ekki að gefa norska ofurliðinu tommu eftir og heimamenn náðu fljótt fjögurra marka forskoti. Mest náði Runar sex marka forystu í fyrri hálfleik, en staðan var 21-17, Runar í vil, þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn svo af sama krafti og náðu mest upp sjö marka forskoti. Lengst af leit út fyrir að sigur þeirra yrði nokkuð öruggur, en Íslendingaliðið gaf allt í botn á lokamínútunum. Í stöðunni 35-29 settu liðsmenn Kolstad í fluggírinn, skoruði sex af næstu sjö mörku leiksins og minnkuðu muninn niður í eitt mark. Nær komust þeir þó ekki og niðurstaðan varð einmitt eins marks sigur Runar, 37-36. Sigvaldi og Janus voru markahæstu menn Kolstad í dag eins og svo oft áður. Sigvaldi skoraði níu mörk fyrir liðið og Janus sex, en Janus bætti einnig við níu stoðsendingum fyrir liðsfélaga sína. Eftir þessi úrslit er staðan í undanúrslitaeinvíginu nú jöfn, 1-1, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitum.
Norski handboltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira