Innherji

Stoðir kaupa ráðandi hlut í Arctic Adventures

Hörður Ægisson skrifar
Arctic Adventures er eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og skipuleggur, selur og sér um framkvæmd ferða og afþreyingarupplifana um allt land. Félagið velti um 6 milljörðum króna áður en heimsfaraldurinn hófst.

Stoðir leiða hóp innlendra fjárfesta sem hafa gengið frá kaupum á samtals nærri helmingshlut í Arctic Adventures. Viðskiptin voru gerð eftir að fyrrverandi forstjóri félagsins nýtti sér forkaupsrétt og seldi áfram hlutina í Arctic Adventures til fjárfestingafélagsins sem er nú orðið stór eigandi í þremur ferðaþjónustufyrirtækjum. 

Fleiri fréttir

Sjá meira

×