Viðskipti innlent

2.100 vildu vinna hjá Bláa lóninu í sumar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Fjöldi nýliða mætir til leiks í Bláa lónið í sumar.
Fjöldi nýliða mætir til leiks í Bláa lónið í sumar. Vísir/Vilhelm

Mikill fjöldi fólks fékk ekki sumarvinnu hjá Bláa lóninu en þúsundir umsókna bárust um hundrað störf sem auglýst var eftir. Aldrei hafa fleiri umsóknir borist um sumarstörf hjá fyrirtækinu.

Þetta kemur framm í tilkynningu frá Bláa lóninu. Þar segir að 2.100 umsóknir hafi borist um hundrað störf sem voru auglýst í upphafi árs. Ráðningin er á lokametrunum og framundan þjálfun hjá þeim mikla fjölda sem hefur störf hjá lóninu í sumar. 

„Það er auðvitað einstaklega ánægjulegt að sjá þennan mikla áhuga á fyrirtækinu og gaman að sjá svo stóran hóp mjög frambærilegra umsækjenda,“ segir Sigrún Halldórsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs, öryggis og heilsu í tilkynningunni. 


Tengdar fréttir

„Það skemmir ekki hár“

Myndbönd þar sem fólk segir hárið sitt vera ónýtt eftir heimsókn í Bláa lónið hafa vakið gífurlega athygli á samfélagsmiðlum. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir þó að innihaldsefni lónsins skemmi ekki hár, þvert á móti hafi þau góð áhrif á það. 

Gest­ir Bláa lóns­ins verð­a færr­i en fram­legð mun auk­ast um liðlega fjórðung

Ferðaþjónusta þarf breytast frá því að einblína á magn í framlegð, rétt eins og sjávarútvegur gerði í kringum 1980, sagði seðlabankastjóri. Forstjóri Bláa lónsins sagði að horft sé til þess í hans rekstri að í ár verði gestir 20-30 prósent færri en framlegðin aukist um 20-30 prósent. „Við erum á þessari vegferð sem stjórnvöld kalla eftir,“ sagði hann.

Stefna að skráningu Bláa lónsins í haust

Stjórn Bláa lónsins, eins stærsta ferðaþjónustufyrirtækis landsins, hefur ákveðið að hefja undirbúning að því að skrá félagið í Kauphöllina í haust. Þetta staðfestir Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Bláa lónsins, í samtali við Innherja, en hann kynnti ákvörðunina á hluthafafundi félagsins í morgun.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×