Stefna að skráningu Bláa lónsins í haust Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar 17. mars 2023 13:12 Í síðustu stóru viðskiptum með hlutafé Bláa lónsins var félagið metið á 60 milljarða króna. VÍSIR/VILHELM Stjórn Bláa lónsins, eins stærsta ferðaþjónustufyrirtækis landsins, hefur ákveðið að hefja undirbúning að því að skrá félagið í Kauphöllina í haust. Þetta staðfestir Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Bláa lónsins, í samtali við Innherja, en hann kynnti ákvörðunina á hluthafafundi félagsins í morgun.
Innherji greindi frá skráningaráformum Bláa lónsins í nóvember en þá kom til greina að skrá félagið í vor. Úlfar segir að það sé mat stjórnar að skynsamlegra sé að skrá félagið í haust. „Hugsunin var sú að hefja undirbúning þegar menn teldu aðstæður vera hagfelldar. Vegna markaðsaðstæðna teljum við skynsamlegra að horfa til skráningar í haust,“ segir Úlfar. Þá er einnig talið styrkja hlutafjárútboðið að afkoma félagsins yfir sumarmánuðina liggi fyrir. „Í stað þess að selja væntingar þá erum við að fara að selja staðreyndir sem verða á borðinu á þeim tíma,“ segir hann. Bláa lónið, sem var lokað frá október 2020 til júní 2021, tapaði sem 4,8 milljónum evra á árinu 2021. Í umfjöllun Innherja í nóvember kom fram að reksturinn hefði gengið vonum framar eftir að það fór að starfa á fullum afköstum þegar öllum sóttvarnarráðstöfum var aflétt. Að sögn viðmælenda gerðu áætlanir Bláa lónsins ráð fyrir metafkomu á þessi ári miðað við spár um þróun og samsetningu ferðamannafjöldans. Gangi spár ISAVIA eftir koma 2,2 milljónir ferðamanna til Íslands á þessu ári en aðeins einu sinni áður hafa fleiri komið til landsins á einu ári. Það var metið árið 2018 en þá nam fjöldi ferðamanna 2,3 milljónum. Síðustu stóru viðskipti með hluti í Bláa lóninu voru síðsumars árið 2021 þegar Stoðir og hópur lífeyrissjóða í gegnum samlagshlutafélagið Blávarma – í aðskildum viðskiptum með skömmu millibili – keyptu samanlagt rúmlega tólf prósenta hlut í félaginu sem verðmat það á liðlega 60 milljarða. Væntingar eru um að verðmiðinn á Bláa lóninu hafi hækkað nokkuð frá þeim tíma samhliða hraðri endurreisn ferðaþjónustunnar hér á landi eftir faraldurinn. Í stað þess að selja væntingar þá erum við að fara að selja staðreyndir sem verða á borðinu á þeim tíma Lífeyrissjóðirnir eignuðust fyrst 30 prósenta hlut í Bláa lóninu vorið 2019 þegar þeir keyptu eignarhlutinn af HS Orku en í þeim viðskiptum var ferðaþjónustufyrirtækið metið á 50 milljarða króna. Stærsti hluthafi Bláa lónsins, með 39,6 prósenta hlut, er samlagshlutafélagið Hvatning en stærsti eigandi þess með 60 prósenta hlut er eignarhaldsfélagið Kólfur, sem Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins fer með forræði yfir, á meðan framtakssjóður í rekstri Landsbréfa heldur hins vegar á tæplega 40 prósenta hlut. Í dag eru flugfélögin tvö – Icelandair og Play – einu ferðaþjónustufyrirtækin sem eru skráð á hlutabréfamarkað. Íslandshótel, stærsta hótelkeðja landsins, hafði áður gefið út að félagið stefndi að skráningu í Kauphöllina fyrir árslok 2022 en áformin voru sett á ís.
Bláa lónið Kauphöllin Mest lesið Verkfallsaðgerðir í maí kostuðu Eimskip um 90 milljónir króna Innherjamolar Gildi selur í stóru bönkunum fyrir marga milljarða á skömmum tíma Innherjamolar „Staðan er þung“ hjá Kaldvík eftir erfiðan vetur og lækka verðmatið frekar Innherji Fjárfestingafélagið Kjölur stækkar talsvert við stöðuna í Íslandsbanka Innherjamolar Skynsöm beiting nýs regluverks skiptir sköpum fyrir áframhaldandi erlendri fjárfestingu Umræðan Krónan styrktist að nýju með milljarða kaupum erlendra sjóða í Íslandsbanka Innherji Útlit fyrir að arðsemi Arion verði vel yfir markmiði með auknum vaxtatekjum Innherjamolar Skák og mát í Íran Umræðan Afkoman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri eldsneytiskostnaðar Innherji Líklegt að markaðir fari að leita í jafnvægi eftir mjög hagfelldar aðstæður Innherji Fleiri fréttir Verkfallsaðgerðir í maí kostuðu Eimskip um 90 milljónir króna Gildi selur í stóru bönkunum fyrir marga milljarða á skömmum tíma „Staðan er þung“ hjá Kaldvík eftir erfiðan vetur og lækka verðmatið frekar Skynsöm beiting nýs regluverks skiptir sköpum fyrir áframhaldandi erlendri fjárfestingu Vonast eftir aukinni veltu með innkomu yfir þrjátíu nýrra erlendra sjóða Útlit fyrir að arðsemi Arion verði vel yfir markmiði með auknum vaxtatekjum Líklegt að markaðir fari að leita í jafnvægi eftir mjög hagfelldar aðstæður Fyrirtæki farin að „fresta öllum ákvörðunum sem hægt er að fresta“ Þátttakan í útboði Alvotech fjármögnuð með láni frá breskum vogunarsjóði Stoðir selja í Arion banka fyrir meira en hálfan milljarð Verðlagning íslenskra hlutabréfa er enn hóflegri en vestanhafs Vatnaskil gætu verið í kortunum og spá því að vaxtahækkunum sé lokið í bili Minni fjármálafyrirtæki draga saman seglin við erfiðar markaðsaðstæður Blekkingin um lægri húsnæðiskostnað með evru Séreignarsjóðir skilað talsvert lakari ávöxtun þrátt fyrir meiri áhættu Stopp á sjálfvirknivæðingu vitleysu Umfang skortsölu jókst verulega eftir áfallið hjá Oculis Ardian veðjar á norræn gagnaver með mörg hundruð milljarða fjárfestingu Afkoma Haga vel yfir væntingum vegna hækkana á olíuverði Að brúa bil á milli kaupanda og seljanda Segjum NEI fyrir kynslóðir framtíðarinnar Fjárfestar seldu í hlutabréfasjóðum fyrir meira en þrjá milljarða „Nokkurn veginn allt“ fallið með íslenskum sjávarútvegi síðustu misseri Varist Pútín þegar straumurinn snýst gegn honum Fjárfestar bæta hratt í framvirku stöðuna til að verjast gengisstyrkingu Þriðja verðbólgumælingin í röð sem sýnir ekki hækkanir á breiðum grunni Kári bætir verulega við stöðuna í Stoðum með kaupum fyrir nærri milljarð Þórunn verður nýr aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins Telja ekkert annað í kortunum en að verð sjávarafurða hækki enn meira Arðsemi íslenskra banka umfram áhættulausa vexti sú lægsta á Norðurlöndunum Sjá meira