Viðskipti erlent

Lentu sam­komu­lagi um losun frá flug­sam­göngum

Kjartan Kjartansson skrifar
Evrópsk flugfélög þurfa að skipta yfir í vistvænna eldsneyti á næstu árum og áratugum með nýjum Evrópureglum.
Evrópsk flugfélög þurfa að skipta yfir í vistvænna eldsneyti á næstu árum og áratugum með nýjum Evrópureglum. Vísir/EPA

Ráðherraráð Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um nýjar reglur til þess að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda frá flugferðum í nótt. Íslensk stjórnvöld krefjast undanþága frá reglunum.

Reglurnar skikka evrópsk flugfélög til þess að nota loftslagsvæn íblöndunarefni í flugvélaeldsneyti til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Samkvæmt þeim þurfa tvö prósent eldsneytis á evrópskum flugvöllum að vera vistvæn árið 2025. Hlutfallið á að aukast upp í sjötíu prósent fyrir miðja öldina.

Viðræður á milli samninganefnda þingins og ráðsins stóðu yfir langt fram á gærkvöldið. Reuters-fréttastofan segir að samkomulagið hafi verið handsalað rétt fyrir miðnætti að evrópskum tíma. Áður en reglurnar geta tekið gildi þarf nefnd fastafulltrúar ráðherraráðsins og samgöngu- og ferðamálanefnd Evrópuþingsins að samþykkja þær fyrir sitt leyti og svo ráðherrarráðið og Evrópuþingið í heild.

Markmið reglnanna er að auka bæði framboð og eftirspurn á svonefndu vistvænu flugvélaeldsneyti sem veldur annað hvort engri losun gróðurhúsalofttegunda eða minni en steinolían sem nú er notuð til þess að knýja flugvélar. Lítið framboð er á slíku vistvænu flugvélaeldsneyti og það er mun dýrara en hefðbundið eldsneyti.

Samkomulagið er hluti af loftslagsáætlun Evrópusambandsins sem gerir ráð fyrir 55 prósent samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 og kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Til þess að þarfa að draga úr losun frá samgöngum um 90 prósent miðað við árið 1990.

Samkvæmt reglunum þarf 1,2 prósent flugvélaeldsneytis að vera efnaeldsneyti fyrir árið 2030. Efnaeldsneyti er framleitt með kolefni sem er fangað. Hlutfallið á að ná 35 prósentum árið 2050.

Telja reglurnar skaða hagsmuni sína

Ríkisstjórn Íslands hefur mótmælt nýju reglunum á þeim forsendum að þær skaði hagsmuni íslenskra flugfélaga og veiki samkeppninsstöðu þeirra og Keflavíkurflugvallar þegar kemur að tengiflugi yfir Atlantshafið. Ísland þyrfti að taka reglurnar upp í gegnum aðild sína að evrópska efnahagssvæðinu (EES).

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur sagt að það liggi algjörlega fyrir, bæði hér heima og í Brussel, að íslensk stjórnvöld muni aldrei taka upp reglugerðir frá EES án þess að tekið sé til íslenskra aðstæðna.

Sum evrópsk flugfélög telja reglurnar skekkja samkeppnisstöðu sína gagnvart flugfélögum á lengri leiðum utan álfunnar.

„Verðhækkunin fyrir ferðalag í gegnum Istanbúl eða Dúbaí er lítil því það er enginn aukakostnaður við vistvænt eldsneyti þegar það er flogið í gegnum þær miðstöðvar,“ hefur Reuters eftir talsmanni þýska flugfélagsins Lufthansa.

Flugfélögin fá þó um tvo milljarða evra, jafnvirði um þrjú hundruð milljarða íslenskra króna, frá Evrópusambandinu til þess að hjálpa þeim að skipta yfir í vistvænna eldsneytið. Féð kemur frá kolefnismörkuðum sambandsins.


Tengdar fréttir

Mikil­vægt að lög­gjöfin taki til­lit til land­fræði­legrar legu Ís­lands

Samkvæmt fyrirhugaðri löggjöf Evrópusambandsins sem hefur það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda mun aukinn kostnaður vegna kolefnislosunar leggjast þungt á flugfélög með tengimiðstöð á Íslandi, einungis vegna landfræðilegrar legu. Að óbreyttu mun þetta leiða til þess að samkeppnisstaða íslensku flugfélaganna veikist gríðarlega með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á ferðaþjónustu, flutninga, annað íslenskt atvinnulíf og samfélag í heild sinni.

„Ís­land getur ekki tekið upp þessa til­skipun“

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra telur að Evrópusambandið sé farið að átta sig á sérstöðu Íslands í flugsamgöngum. Hún segir ljóst að Ísland muni ekki taka tilskipun sambandsins um loftslagsskatta upp óbreytta. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×