Íslenski boltinn

Besta spáin 2023: Eitt skref aftur á bak til að taka tvö á­­fram

Eftir að hafa lent í 5. sæti á síðustu leiktíð, og leiktíðina þar á undan, þá dreymir Selfyssinga um að taka skref fram á við. Þolinmæði er hins vegar dyggð og það þurfa Sunnlendingar að muna gangi spá Vísis eftir.

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Selfyssingar fagna marki. Vísir/Hulda Margrét

Eftir að hafa lent í 5. sæti á síðustu leiktíð, og leiktíðina þar á undan, þá dreymir Selfyssinga um að taka skref fram á við. Þolinmæði er hins vegar dyggð og það þurfa Sunnlendingar að muna gangi spá Vísis eftir.

Venju samkvæmt spáir íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir um gengi liðanna í Bestu deild kvenna fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst þann 25. apríl með þremur leikjum. Fyrstu umferðinni lýkur svo 26. apríl með tveimur leikjum.

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Selfoss lendi í 6. sæti Bestu deildar kvenna í sumar og falli niður um eitt sæti milli ára.

Eftir að hafa lent í 5. sæti bæði sumarið 2022 og 2021 spáir Vísir því að liðið taki í raun eitt skref aftur á bak í sumar til að taka tvö skref áfram þegar fram líða stundir. Björn Sigurbjörnsson er á sínu öðru ári með liðið og hann virðist hafa sterkar skoðanir á hvernig hann vill að lið sitt spili. 

Með réttum leikmönnum getur það gefið vel í aðra hönd en það tekur tíma að púsla saman liði sem á að berjast við stærstu félög landsins.

Selfyssingar stefna á að fagna sem oftast í sumar.Vísir/Hulda Margrét

Árangur liðsins í Lengjubikarnum var ekkert til að hrópa húrra yfir en liðið lak alltof mörgum mörkum miðað við hversu vel mannað það er í öftustu línu. Alls fékk Selfoss á sig 20 mörk í aðeins 5 leikjum. Tapaði liðið meðal annars 7-1 fyrir Íslands- og bikarmeisturum Vals og 7-2 fyrir Þór/KA.

  • Ár í deildinni: 6. tímabil
  • Besti árangur: 3. sæti (2019)
  • Best í bikar: Bikarmeistari (2019)
  • Sæti í fyrra: 5. sæti
  • Þjálfari: Björn Sigurbjörnsson (2. tímabil)
  • Markahæst í fyrra: Brenna Lovera, 8 mörk

Liðið og lykilmenn

Miðað við hversu vel mannað liðið er í öftustu línu þá er í raun ótrúlegt hversu mörg mörk liðið fékk á sig í Lengjubikarnum. Það skal þó passa sig að falla ekki í þá gryfju að yfirfæra það sem gerist í Lengjubikarnum yfir á það sem gæti gerst í sumar.

grafík/bjarki

Selfoss liðið er vel mannað á mörgum stöðum og ætti að geta spilað góðan varnarleik, sé sá gállinn á þeim. Liðið hefur sótt erlendan markvörð eins og nær flest lið deildarinnar. Þá er reynsluboltinn og naglinn Sif Atladóttir í hjarta varnarinnar en það er nær öruggt að Selfyssingar muni stilla upp með þrjá miðverði í sumar. 

Sif Atladóttir er að fara inn í sitt annað tímabil með liðinu.Vísir/Hulda Margrét

Stærsta spurningin er hins vegar hver á að að skora mörkin en Brenna Lovera, helsti markaskorari liðsins undanfarin misseri er flutt af landi brott. Hin efnilega Emelía Óskarsdóttir er gengin í raðir félagsins á láni en það vekur hins vegar athygli að hún hefur ekki enn fengið félagaskipti ef marka má vef KSÍ. Þá gaf Björn út að félagið væri við það að semja við erlendan framherja. 

Einnig vakti athygli nýverið að Selfoss sendi tvo erlenda leikmenn heim rétt eftir að þeir höfðu samið við félagið. Það útskýrir því af hverju liðið er ekki enn búið að taka á sig fulla mynd þó stutt sé í mót.

Komn­ar

  • Emelía Óskarsdóttir frá Svíþjóð [á láni]
  • Grace Sklop­an frá Banda­ríkj­un­um
  • Idun-Krist­ine Jörgensen frá Noregi
  • Ji­mena López frá Banda­ríkj­un­um [á láni]
  • Lilja Björk Unn­ars­dótt­ir frá Álfta­nesi
  • Selma Friðriksdóttir frá Hamri
  • SigríðurTheódóra Guðmundsdóttir frá Val [á láni]

Farn­ar

  • Brenna Lovera til Bandaríkjanna

Ásamt Sif má reikna með að Barbára Sól Gísladóttir verði í stóru hlutverki líkt og svo oft áður. Hún verður titluð sem vængbakvörður í leikkerfi Selfyssinga en ekki láta ykkur bregða ef hún verður meira á vallarhelmingi andstæðinganna heldur en sínum eigin. 

Unnur Dóra Bergsdóttir er svo fyrirliði liðsins og límið á miðjunni. Er einn af þessum leikmönnum sem fer ekki mikið fyrir en það getur blekkt. Er gríðarlega mikilvæg sínu liði og óhemju reynslumikil þrátt fyrir ungan aldur.

  • Sif Atladóttir, 37 ára varnarmaður
  • Barbára Sól Gísladóttir, 22 ára vængbakvörður
  • Unnur Dóra Bergsdóttir, 22 ára miðjumaður

Fylgist með

Loksins, loksins fáum við að sjá Emelíu Óskarsdóttir í efstu deild hér á landi. Eftir að spila með Gróttu í Lengjudeildinni flutti hún til Danmerkur þar sem hún vakti mikla athygli. Þaðan fór hún til Kristianstad í Svíþjóð en er nú komin í Bestu deildina til að láta ljós sitt skína.

Í besta/versta falli

Það virðist sem deildin verði mun jafnari en oft áður. Það sem var tveggja hesta hlaup á toppi deildarinnar virðist ætla að vera þriggja hesta hlaup. Það eru svo óhemju mörg lið sem eru að berjast um 4. sætið þannig að það gæti þurft lítið til að lið falli um nokkur sæti milli umferða. Selfoss gæti í besta falli ögrað liðunum á toppnum og barist um bronsið. Ef liðið lekur mörkum jafn harkalega og það gerði í Lengjubikarnum gæti það lent í verulegu basli og dregist niður neðri helming deildarinnar.


Tengdar fréttir

Besta spáin 2023: Miklar breytingar í Keflavík

Keflavík hefur endað í 8.sæti deildarinnar undanfarin tvö ár og verið fjórum stigum frá falli en vill eflaust ná betri árangri í ár. Til þess þurfa nýjir leikmenn að standa sig frábærlega.

Besta spáin 2023: Skagfirsk sveifla upp og niður

Tindastólskonur sáu til þess í fyrra að fyrsta tímabil liðsins í efstu deild, sumarið 2021, yrði ekki eitthvað einstakt tilvik. Þær eru mættar aftur í deild þeirra bestu en líkt og síðast má búast við þungum róðri í Skagafirði við að halda liðinu uppi.

Besta spáin 2023: Stutt stopp hjá FH

FH er nýliði í deildinni eftir að hafa farið ósigrað í gegnum 1.deildina. Munurinn á deildunum er hins vegar mikill og því þarf allt að ganga upp hjá Hafnarfjarðarliðinu svo ekki fari illa.






×