Innlent

Skera niður á morgun

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Aflífa þarf 720 fjár á Syðri-Urriðaá. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Aflífa þarf 720 fjár á Syðri-Urriðaá. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm

Fé frá Syðri-Urriðaá verður fellt á morgun, þar sem búið er að leysa förgunarvanda sem varð til þess að ekki var hægt að hefja niðurskurð í dag. 

Í dag var greint frá því að ekki væri búið að gera ráðstafanir til að farga hræjum þeirra ríflega 700 kinda sem þarf að aflífa. Mbl.is hefur eftir Sigrúnu Ágústsdóttur, forstjóra Umhverisstofnunar, að málið sé að leysast og farið verði í niðurskurð á morgun.

Þá er haft eftir Sigurborgu Daðadóttur, yfirdýralækni hjá Matvælastofnun, að urðun sé eina leiðin sem fær er. Hræunum verði komið fyrir í lekaheldum gámum þar til gröf hafi verið tekin. Þá verði hræin urðuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×