Viðskipti innlent

Helga Hlín og Magnús ný inn í stjórn Rue de Net

Bjarki Sigurðsson skrifar
Magnús Árnason stjórnarmaður, Aðalsteinn Valdimarsson stjórnarformaður, Helga Hlín Hákonardóttir stjórnarmaður og Alfred B. Þórðarson, framkvæmdastjóri.
Magnús Árnason stjórnarmaður, Aðalsteinn Valdimarsson stjórnarformaður, Helga Hlín Hákonardóttir stjórnarmaður og Alfred B. Þórðarson, framkvæmdastjóri.

Hugbúnaðarfyrirtækið Rue de Net hefur fengið þau Helgu Hlín Hákonardóttur og Magnús Árnason til að taka sæti í þriggja manna stjórn félagsins við hlið Aðalsteins Valdimarssonar stjórnarformanns.

Helga Hlín er eigandi og ráðgjafi hjá Strategíu. Hún er héraðsdómslögmaður með próf í verðbréfaviðskiptum og hefur mikla reynslu af starfi á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, stjórnarsetu og ráðgjöf til stjórna og eigenda fyrirtækja.

Magnús er eigandi og ráðgjafi hjá Marka Ráðgjöf og býr bæði að þekkingu og reynslu á sviði hugbúnaðar og markaðsmála. Hann var markaðsstjóri og framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá Nova frá 2016 til 2022. Magnús hefur meðal annars setið í stjórnum ÍMARK og Cintamani, verið vörustjóri hjá OZ og vörumerkjastjóri Latabæjar.

„Við höfum ávallt einsett okkur að vera í fararbroddi hvað varðar tækninýjungar og höfum á að skipa einvala teymi sérfræðinga með djúpa þekkingu á nýjasta lausnaframboði Microsoft. Til viðbótar við fjárfestingu í þekkingu höfum við einnig fjárfest í nauðsynlegum sérlausnum fyrir íslenska markaðinn. Nú viljum við byggja á allri þessari þekkingu og reynslu og bæta enn frekar í. Við teljum að tækifæri til vaxtar séu mörg og frábært að fá þau Helgu Hlín og Magnús með okkur í lið til að marka þá vegferð," er haft eftir Aðalsteini Valdimarssyni, stjórnarformanni fyrirtækisins, í tilkynningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×