Viðskipti innlent

Flýta vinnslu á Græn­landi eftir sjö milljarða láns­fjár­mögnun

Atli Ísleifsson skrifar
Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, og Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq, þegar Amaroq var skráð á First North markaðinn í nóvember síðastliðinn.
Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, og Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq, þegar Amaroq var skráð á First North markaðinn í nóvember síðastliðinn. Aðsend

Auðlindafélagið Amaroq Minerals, sem heldur á víðtækum rannsóknar- og vinnsluheimildum á Grænlandi, hefur gengið frá sjö milljarða króna lánsfjármögnun. Fjármagnið verður nýtt til að hefja gullvinnslu í Nalunaq námunni fyrr en ella. Þá kannar félagið nú skráningu á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar. Þar segir að um sé að ræða heildarfjármögnun upp á rétt tæplega 49,5 milljónir bandaríkjadala sem samanstandi af lánveitingu frá Landsbankanum og Fossum fjárfestingarbanka auk breytanlegra lána frá nokkrum af núverandi hluthöfum – ACAM LP, JLE Property Ltd, Livermore Partners og First Pecos.

„Félagið hefur nú þegar fjárfest í búnaði fyrir gullvinnslu fyrir um 1,2 milljarð en áætlanir gera ráð fyrir kostnaði upp á 8 milljarða við þennan áfanga.

Auk fyrrnefndrar fjármögnunar situr félagið á um 5 milljörðum í reiðufé. Þess ber einnig að geta að félagið stefnir á að uppfylla öll skilyrði fyrir sölu á 49% eignarhlut í dótturfélaginu Gardaq til GCAM LP. Búist er við að það skili félaginu um þremur milljörðum króna til viðbótar. Að öllu þessu samanlögðu mun félagið hafa aðgang að um 15 milljörðum króna.

Rannsóknarboranir á Nalunaq svæðinu hafa skilað afar góðum niðurstöðum og magn gulls verið að mælast um 28 grömm úr hverju tonni af bergi. Í sumar mun Amaroq undirbúa Nalunaq námuna fyrir gröft og gullvinnslu, en auk þess verður borað á sjö stöðum á Suður-Grænlandi í leit að kopar, nikkel, gulli og öðrum efnahagslega mikilvægum málmum.

Félagið hefur jafnframt til skoðunar að flytja sig af Nasdaq Iceland First North yfir á Aðalmarkað Nasdaq Iceland og hefur verið í viðræðum við Landsbankann og Fossa fjárfestingarbanka í þeirri vegferð. Nánari upplýsingar verða veittar þegar þær liggja fyrir,“ segir í tilkynningunni.

Nýtist til skamms tíma og til lengri tíma

Haft er eftir Eldi Ólafssyni,forstjóra Amaroq, að með fjármögnuninni geti félagið hafið fullvinnslu á gulli á Grænlandi fyrr en áætlað hafi verið með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á sjóðstreymi.

„Félagið er einnig að skoða möguleika á því að nýta endurnýjanlega orku til að knýja námuvinnsluna. Það mun nýtast okkur til skamms tíma en samfélagið á Grænlandi mun njóta þess áfram til lengri tíma. Félagið er einnig að skoða sjálfvirknivæðingu vélaflotans í námunni sem og að minnka kostnað við birgðahald með því að setja upp þjónustufélag. Við viljum þakka fjárfestum sem og lánveitendum það traust sem þeir sýna okkur og við hlökkum til að fá að segja markaðnum frá næstu skrefum.“

Um Amaroq Minerals

Um Amaroq Minerals segir að það hafi verið stofnað árið 2017 með megináherslu á gullleit og -rannsóknir á Grænlandi. Fyrirtækið sé með leyfi til að leita að og vinna gull og aðra verðmæta málma í Suður-Grænlandi, en stærsta eign Amaroq er Nalunaq-gullnáman, sem verið er að koma aftur í vinnslu. 

Hlutabréf Amaroq eru skráð á mörkuðum á Íslandi, Toronto og í London.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×