Elvar og félagar úr leik þrátt fyrir nauman sigur Smári Jökull Jónsson skrifar 22. mars 2023 19:44 Elvar Friðriksson og félagar hans í litháíska félaginu Rytas eru komnir í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar í körfuknattleik. FIBA Elvar Friðriksson og félagar hans í litháíska félaginu Rytas eru úr leik í Meistaradeildinni í körfuknattleik þrátt fyrir eins stigs sigur á Baxi Manresa í kvöld.
Fyrir leikinn í kvöld var ljóst að Rytas þyrfti á þrettán stiga sigri að halda til að tryggja sig áfram en spænska liðið Baxi Manresa var einu stigi á undan Rytas í töflunni fyrir lokaumferðina. Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi í upphafi en í öðrum leikhluta náðu gestirnir frá Spáni góðum kafla og leiddu með átta stigum í hálfleik, staðan þá 52-44 fyrir Baxi Manresa. Heimamenn náðu þó vopnum sínum á ný. Þeir jöfnuðu metin snemma í þriðja leikhluta og náðu forystunni um hann miðjan. Staðan eftir leikhlutann 74-70 og spennan mikil. Heimamenn í Rytas náðu níu stiga forskoti í upphafi fjórða leikhluta og komust mest fjórtán stigum yfir þegar fimm mínútur voru eftir. Gestirnir frá Spáni voru hins vegar ekki dauðir úr öllum æðum. Þeir náðu 11-0 kafla og mínútu fyrir leikslok voru þeir búnir að minnka muninn í tvö stig, staðan þá 91-89. Þá vöknuðu hins vegar heimamenn. Rytas skoraði fimm stig í röð og tryggði sér sigurinn. Baxi Manresa minnkaði muninn af vítalínunni undir lokin en Rytas fagnaði 96-95 sigri og um leið sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Elvar Friðriksson skoraði fjórtán stig í leiknum á þeim rúmu átján mínútum sem hann lék. Hann gaf fjórar stoðsendingar og tók eitt frákast.
Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Fótbolti Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda Fótbolti „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Handbolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Körfubolti Fleiri fréttir „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Sjá meira