Viðskipti erlent

Credit Suis­se drag­bítur á evrópskum bönkum

Kjartan Kjartansson skrifar
Credit Suisse er annar stærsti banki Sviss. Hann er með starfsemi víða um heim. Fall hans væri annað og stærra mál en hrun bandarísku bankanna tveggja um helgina.
Credit Suisse er annar stærsti banki Sviss. Hann er með starfsemi víða um heim. Fall hans væri annað og stærra mál en hrun bandarísku bankanna tveggja um helgina. AP/Ennio Leanza/Keystone

Svissneski bankinn Credit Suisse dróg evrópska banka niður með sér þegar hlutabréfaverð hans hríðféll í skugga óróa vegna falls tveggja bandarískra banka í dag. Gengi bréfa bankans féll um allt að þrjátíu prósent og hefur aldrei verið lægra.

Credit Suisse er með umsvif víða um heim en bankinn hefur átt í erfiðleikum upp á síðkastið sem eru ótengdir falli Silicon Valley Bank og Signature Bank í Bandaríkjunum sem hefur skapað óróleika og ótta við frekari skakkaföll í fjármálageiranum undanfarna daga.

Yfirlýsing Sádiarabíska þjóðarbankans, stærsta hluthafa Credit Suisse, um að hann ætlaði ekki að dæla meira fé inn í hann leiddi til hrunsins á hlutabréfamörkuðum í dag. AP-fréttastofan segir að gengi bréfanna hafi mest lækkað um 31 prósent. Viðskipti með bréf bankans voru stöðvuð sjálfkrafa í svissnesku kauphöllinni.

Aðrir evrópskir bankar hríðféllu í verði í kjölfarið, sumir um meira en tíu prósent. Reuters-fréttastofan segir að evrópska bankavísitalan SX7p hafi fallið um sjö prósent.

Ekki inn í myndinni að leita aðstoðar ríkisins

Fulltrúar Seðlabanka Evrópu eru sagðir hafa verið í sambandi við banka í álfunni til að kanna áhættu þeirra vegna erfiðleika Credit Suisse. Heimildarmenn Reuters segjast þó telja að vandamálið sé frekar bundið við svissneska bankann sjálfan en að það sé kerfislægt.

Svissneski seðlabankinn hefur ekki tjáð sig um vandræði Credit Suisse sem er annar stærsti banki landsins. Alex Lehmann, stjórnarformaður Credit Suisse, sagði það ekki inn í myndinni að bankinn leitaði ásjár stjórnvalda til að halda sér á floti.

Andrew Kenningham, aðalhagfræðingur hugveitunnar Capital Economics, segir AP að Credit Suisse sé töluvert meira áhyggjuefni fyrir hagkerfi heimsins en miðlungsstóru bankanir tveir sem féllu vestanhafs. Bankinn á dótturfélög utan Sviss og vogunarsjóðir eru á meðal viðskiptavina hans.

„Credit Suisse er ekki bara svissneskt vandamál heldur hnattrænt,“ segir hann.

Kröggur svissneska bankans hafi þó verið vel þekktar fyrir og komi því hvorki fjárfestum né stjórnmálamönnum í opna skjöldu.


Tengdar fréttir

Rann­saka fall Kísil­dals­bankans

Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×