Viðskipti innlent

Bein út­sending: Kynna yfir­lýsingu nefndarinnar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ásgeir Jónsson formaður fjármálastöðugleikanefndar og Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.
Ásgeir Jónsson formaður fjármálastöðugleikanefndar og Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika. Stöð 2/Egill

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.

Yfirlýsing nefndarinnar var kynnt í morgun þar sem sagði meðal annars að fjármálakerfið hér landi standi traustum fótum en útlit sé fyrir að verðbólga verði þrálát.

Hér að neðan má horfa á beina útsendingu þar sem nefndarmenn fjármálastöðugleikanefndar munu kynna yfirlýsingu nefndarinnar og kynna útgáfu ritsins Fjármálastöðugleiki, sem kom út í dag.

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar 15. mars 2023

Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Rekstur kerfislega mikilvægra banka hefur gengið vel og hafa þeir stutt við heimili og fyrirtæki. Eiginfjár- og lausafjárstaða þeirra er sterk.

Fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja fara þó versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. Útlit er fyrir að verðbólga verði þrálát og að greiðslubyrði lána þyngist.

Sá vandi sem steðjar að fjármálafyrirtækjum á alþjóðlegum mörkuðum er áminning um nauðsyn þess að innlánsstofnanir búi yfir nægjanlegum styrk til að geta sinnt hlutverki sínu; að miðla lánsfé og greiðslum, greina og stýra áhættu með viðhlítandi hætti, jafnt í meðbyr sem mótbyr. Í ljósi mikillar innlendrar eftirspurnar og þeirrar óvissu sem ríkir um þróun á fjármálamörkuðum er góður viðnámsþróttur innlendra fjármálafyrirtækja mikilvægur.

Á síðustu mánuðum hefur dregið úr spennu á íbúðamarkaði. Framboð hefur aukist og sölutími lengst. Fasteignaverð er farið að lækka en er þó enn hátt á nær alla mælikvarða. Til marks um það er hlutfall fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu af byggingakostnaði með hæsta móti. Lánþegaskilyrðin hafa dregið markvert úr áhættusömum lánveitingum. Einnig eru lánveitendur vel í stakk búnir til að draga úr greiðslubyrði með breyttu lánsformi. Fjármálastöðugleikanefnd áréttar mikilvægi þess að lánveitendur á íbúðalánamarkaði vinni með lántakendum, nú sem áður, til að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika eins og kostur er.

Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að hækka gildi sveiflujöfnunarauka úr 2% í 2,5% af innlendum áhættugrunni. Bankarnir eru vel í stakk búnir til að mæta aukinni eiginfjárkröfu og viðhalda á sama tíma framboði lánsfjár. Sveiflujöfnunaraukinn er mikilvægur þáttur í viðnámsþoli bankakerfisins. Hækkunin nú er til þess fallin að auka enn frekar á viðnámsþrótt fjármálafyrirtækja í ljósi þeirrar áhættu sem byggst hefur upp og gæti raungerst á næstu misserum. Ákvörðun nefndarinnar tekur gildi að 12 mánuðum liðnum.

Nefndin áréttar mikilvægi þess að komið verði á fót óháðri innlendri smágreiðslulausn og styður þau skref sem þegar hafa verið tekin að því marki. Æskilegt er að þeirri vinnu verði hraðað eins og kostur er og að niðurstaða fáist innan árs.

Fjármálastöðugleikanefnd mun áfram beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.


Tengdar fréttir

Telja fjár­mála­kerfið hér standa traustum fótum

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans telur að innlent fjármálakerf standi traustum fótum. Þó hafa fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja farið versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. Útlit er fyrir að verðbólga verði þrálát





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×