Handbolti

Einar Örn um ís­lenska hand­bolta­lands­liðið: Þetta er ekki lið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska handboltalandsliðið er óþekkjanlegt þessa dagana.
Íslenska handboltalandsliðið er óþekkjanlegt þessa dagana. Vísir/Vilhelm

Einar Örn Jónsson þekkir íslenska handboltalandsliðið frá öllum hliðum og hann var í sjokki eftir leik íslenska liðsins á móti Tékkum á miðvikudaginn.

Íslenska liðið tapaði leiknum með fimm marka mun og þarf nú sex marka sigur um helgina ætli liðið sér að vinna riðilinn og komast í efsta styrkleikaflokk fyrir dráttinn í riðla á EM sem fer fram í Þýskalandi í janúar.

„Maður getur orðið fúll yfir því að nokkrar sóknir fari forgörðum, að það líði nokkrar mínútur milli marka, en að spila hræðilegan fyrri hálfleik og taka síðan heilt korter í þeim seinni í að skora eitt mark með tilliti til slæms fyrri hálfleiks. Það var þá sem ég varð bara fyrir sjokki. Ég bjóst aldrei við því að sjá þetta frá íslensku lands­liði og þá kannski síst frá þessu tiltekna íslenska landsliði,“ sagði Einar Örn í samtali við Fréttablaðið.

Einar Örn Jónsson, er eins og flestir vita fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og núverandi íþróttafréttamaður hjá RÚV.

Hann segir að liðið sem hópur, virðist vera á mjög erfiðum stað.

„Það þarf að búa til lið, finna réttu blönduna og græja allt það sem þarf að græja svo lið smelli saman. Maður hélt að allt það væri til staðar hjá þessu íslenska landsliði af því að við höfum séð það áður. En svo horfir maður á þennan leik gegn Tékkunum og verður, í framhaldi af honum, að segja að þetta er ekki lið. Við erum ekki með lið, því lið verja sig gegn svona áföllum. Lið geta alveg tapað leikjum en þau verja sig gegn svona. Lið stendur saman, berst áfram í gegnum hlutina, það þekkja allir sín hlutverk og enginn er brotin skel inni á vellinum,“ sagði Einar Örn.

„Maður sá brot af því á HM, að við værum ekki lið, en svo sá maður það að fullu á móti Tékkunum þegar við fórum á háværan útivöll gegn algjöru miðlungsliði og steinliggjum. Það er enginn sem að ber hönd fyrir höfuð sér til að verja liðið gegn þessu áhlaupi og áfalli,“ sagði Einar Örn.

Það má lesa allt viðtalið hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×