Handbolti

„Við erum að taka skref fram á við í hverju verkefni“

Andri Már Eggertsson skrifar
Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta.
Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Vísir/Hulda Margrét

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann sex marka sigur á B-liði Noregs 31-26. Arnar Pétursson, þjálfari íslenska liðsins, var ánægður sigurinn.

„Ég bjóst ekki við því að við myndum vinna þetta með sex mörkum. Þrátt fyrir að við vorum að spila við B-lið Noregs þá eru þetta hörku leikmenn og við kláruðum þetta mjög vel,“ sagði Arnar Pétursson aðspurður hvort úrslitin hafi komið honum á óvart.

Arnar var þokkalega ánægður með fyrri hálfleik Íslands þar sem Ísland var einu marki yfir í hálfleik 15-14.

„Handbolti er leikur áhlaupa og það var ekkert skrítið að þær komu til baka. Ég var mjög ánægður með hvernig við mættum til leiks af því að við erum að mæta sterkri þjóð og það var mikil trú í okkur. Ég var síðan ánægður með hvernig við svöruðum eftir að þær komu til baka sem var karaktereinkenni sem ég var mjög ánægður með.“

Arnar var afar ánægður með hvernig Ísland byrjaði síðari hálfleik og gestunum frá Noregi aldrei tækifæri til að koma til baka.

„Við vorum að spila mjög góða vörn. Við höfum verið að reyna nýja hluti líkt og gegn Ísrael þar sem við vildum koma hærra upp. Ég var ekki viss hvernig það myndi virka gegn sterkari þjóð en Ísrael en það gerði það og stelpurnar voru ofboðslega vinnusamar og tóku frumkvæði varnarlega.“

Ísland mætir Ungverjalandi í umspili um sæti á HM í næsta mánuði en Arnar sagði að áherslur kvöldsins voru ekki miðaðar við leikinn gegn Ungverjalandi.

„Ég miðaði áherslurnar í kvöld ekki við Ungverjaland. Ég er að horfa á það sem við erum að gera og leggja áherslu á að við séum að bæta okkar leik. Við erum að taka skref fram á við í hverju verkefni. Við gerðum það í kvöld og vonandi gerum við það líka á laugardaginn. Ungverjaland er síðan eftir mánuð og það er eitt af betri landsliðum heims og það verður annað krefjandi og spennandi verkefni,“ sagði Arnar Pétursson að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×