„Oft verður hönd skamma stund höggi fegin“ Birgir Dýrfjörð skrifar 26. febrúar 2023 14:00 Verkbann SA (Samtök atvinnulífsins) getur reynst dýrkeypt vindhögg. Dýrmætasta eign hverrar manneskju er sjálfsmynd hennar og sjálfsvirðing. Einstaklingar greina sig hver frá öðrum með sjálfsmynd sinni, að lítilsvirða sjálfsmynd fólks, er niðurlægjandi, árás á persónuleika þess. Árás sem alla særir og enginn gleymir. Starfandi fólki, sem vísað er frá vinnustað sínum vegna stéttarstöðu sinnar, mun upplifa verkbann SA sem niðurlægjandi árás á sjálfsmynd sína, og þjóðfélagsstöðu. Sú niðurlæging mun í mörgum tilvikum breytast í reiði og óvild starfsfólks gegn stjórnendum og fyrirtækjum, sem það starfar hjá. Þannig óvild er ekki auðséð en hún mun sífellt liggja í loftinu, og hafa eyðileggjandi áhrif. Líklegt er þá, að niðurlægðir og sárir starfsmenn finni hjá sér hvöt til, að launa fyrirtækinu illt með illu, rauðan belg fyrir gráan. Til þess hafa þeir endalausa og óteljandi möguleika. Hætt er þá við, að „mistökum“ fjölgi, framlegð minnki , og mannauður fyrirtækisins rýrni. Þá hrynur mórallinn. Eigendur naga sig í handabökin, og bölva sér og Benjamíni fyrir vindhöggið. Nú á VG leik, án höfrungahlaups Áður fyrr var aðkoma ríkisvaldsins að vinnudeilum algeng. Hún var kölluð félagsmálapakkar. Þeir voru með þeim hætti að sett voru lög og/eða reglugerðir um lífskjarabætur. Það er þekkt, við verkgreiðslur, að tekið er tillit til til kostnaðar, sem leiðir af ytri aðstæðum. Kostnaður, sem þannig er tilkominn, er þá greiddur sérstaklega, en ekki sem launataxti. Hann veldur því ekki höfrungahlaupi. Húsaleigubætur eru tekjutengdar. Þær fást aðeins greiddar gegn þinglesnum samningi. Þær gagnast öllu láglunafólki, ASÍ, -BSRB,- ellilífeyrisþegum og öryrkjum Það er óumdeild staðreynd samkvæmt þinglesnum leigusamningum, að meðalverð húsaleigu á HB-svæðinu, er 220 þús. á móti meðaltali landsbyggðinni 152 þús. Þar munar 68 þús.kr. á mánuði. Nú er krafa Eflingar, að bæta fólki kostnaðarmun á leiguíbúðum í strjálbýli og höfuðborgarsvæði. Sé hann jafnaður með húsaleigubótum þá er það kjarabót, sem ekki veldur höfrungahlaupi. Vegna staðfestra opinberra gagna, þá er auðvelt, að svæðisbinda húsaleigubætur. Fjarvera VG Staðlað svar Katrínar Jakobsdóttur, þegar vinnudeilur ber á góma er bara. „Það er auðvita frumskylda þeirra sem sitja við borðið, að semja sín á milli um kaup og kjör“. - Ég mæti ekki. Nú er orðið ljóst, að VG leiðin er ekki fær. Í grein eftir H. Benjamín (31.12.´23.) segir orðrétt: „Það blasir við hverjum sem sjá vill að samtök atvinnulífsins geta ekki samið um aðrar og meiri launahækkanir en felast í þegar gerðum samningum. (SGS samningurinn ) Í því myndi felast trúnaðarbrot gagnvart verkalýðsfélögunum sem þegar hafa samið og starfa um allt land en ekki síst á höfuðborgarsvæðinu,“ Fólkið á lægstu textum Eflingar getur ekki beðið Síðustu daga hvers mánaðar eiga margir ekki fyrir mat sínum. Þeir slá á svengd sína og barna sinna með núðlusúpum og mjólkurlausum hafragraut. Því miður er þetta ekki ýkt lýsing. Ég veit sjálfur af fólki, sem lifir við þessar aðstæður í viðvarandi ugg og kvíða, um næstu daga. Vilhjálmur Birgis, frelsaðu SA og Benjamín Benjamín segist ekki geta samið við Eflingu því hann sé bundinn trúnaði við þitt félag Vilhjálmur. Við skulum gefa honum að hann trúi að það sé satt. Þú segir á móti að það sé ekki satt. Ég vil trúa þér. Ég hef aldrei efast um löngun þín að bæta hag þeirra, sem bágast eiga,-aldrei. Því bið ég þig Vilhjálmur, með þjóðarhag í huga og angist þeirra, sem minnst bera úr bítum, og fátækastir eru, að gera nú strax það sem Ragnar, formaður Félags verslunarmanna gerði. Hann lýsti því yfir að hans félag myndi ekki gera athugasemd þó samningar við Eflingu yrðu í einhverju betri en nýgerðir samningar Félags verslunarmanna. Ef þú gerir eins Vilhjálmur, þá léttir þú á samvisku Benjamíns. Þá geta SA gengið til samninga við Eflingu sem frjálsir menn. Ef þú drífur í þessu Vilhjálmur þá verður öll þjóðin þér þakklát, sérstaklega ráðendur SA. Höfundur er rafvirki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birgir Dýrfjörð Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar