Heilsa

Hreyfum okkur saman - Styrktar­æfingar fyrir efri hlutann

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Anna Eiríks hefur starfað sem þjálfari í átján ár.
Anna Eiríks hefur starfað sem þjálfari í átján ár. Vísir

Í nýjasta þættinum af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks góðar styrkjandi æfingar fyrir efri hluta líkamans.

Unnið er með tvær æfingar saman í svokölluðu súpersetti, hver æfing unnin í 20 sekúndur, pása í tíu sekúndur og gerð eru tvö sett. Gott er að nota eitt par af handlóðum í æfingunum. 

Líkt og alltaf er æfingin í kringum fimmtán mínútur en þeir sem vilja meiri áskorun geta gert æfinguna oftar en einu sinni.

Hreyfum okkur saman eru stuttir og fjölbreyttir æfingaþættir fyrir alla sem hafa heilsu til. Anna Eiríksdóttir leiðir þættina með frábærum æfingum og er markmiðið að fá sem flesta til að huga að heilsunni og hreyfa sig smá á hverjum degi.

Þættirnir Hreyfum okkur saman eru sýndir hér á Lífinu á Vísi og Stöð 2+. Næstu vikurnar munu koma út tveir þættir á viku en eldri þætti má finna HÉR.

Anna Eiríks er stofnandi annaeiriks.is og er með Instagram síðuna instagram.com/aeiriks.


Tengdar fréttir

Hreyfum okkur saman - Góðar teygjuæfingar

Í nýjasta þættinum af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks góðar teygjur. Anna segir að þetta sé æfing liðki líkamann með dásamlegu flæði og góðum hreyfiteygjum.

Hreyfum okkur saman - Góðar rassæfingar

Í níunda þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks styrkjandi æfingar fyrir rassvöðva og læri þar sem eingöngu er unnið með eigin líkamsþyngd. 

Hreyfum okkur saman: Jóga og styrkur

Í áttunda þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks jógaæfingu. Þetta er öflugt jógaflæði í bland við góðar styrktaræfingar með eigin líkamsþyngd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×