Körfubolti

Trúði því ekki þegar Lebron James settist við hliðina á henni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James fagnaði því vel þegar hann sló stigametið en hann hefur ekki spilað með Lakers liðinu síðan.
LeBron James fagnaði því vel þegar hann sló stigametið en hann hefur ekki spilað með Lakers liðinu síðan. Getty/Robert Gauthier

Hin tólf ára gamla Gaia fékk ekki að sjá LeBron James spila á laugardagskvöldið en fékk samt að sitja við hliðina á stigahæsta leikmanninum í sögu NBA deildarinnar.

James er að glíma við meiðsli og hefur misst af leikjum Los Angeles Lakers eftir að hann bætti stigametið í síðustu viku. James var því ekki með þegar Los Angeles Lakers heimsótti Golden Sate Warriors um helgina.

Hann fékk hins vegar sæti á gólfinu yst á varamannabekk Lakers.

Við hlið hans sátu systkinin Gaia og Liam. Þau voru auðvitað mætt löngu fyrir leik og Gaia var ekkert að velta því fyrir sér hver ætti að sitja í sætinu við hlið hennar.

Myndavélarnar voru síðan á LeBron James þegar hann mætti í salinn og náði því viðbrögðunum frá Gaiu þegar hún áttaði sig á því hver hefði sest við hliðina á henni.

Viðbrögð hennar voru svo kostuleg að þau fóru á flug um samfélagsmiðla. Hlutirnir eru líka fljótir að gerast á tækniöld því strax í öðrum leikhluta var Gaia kominn í sjónvarpsviðtal.

Viðtalið var tekið við Gaiu þar sem Lebron sat við hlið hennar en hann kippti sér ekkert upp við það og lét sem ekkert væri. Eftir leikinn hittust þau þó og hún fékk að taka mynd af sér með honum.

Gaia sagðist hafa ætlað að sjá Lebron bæta stigametið í þessum leik en hann fór á mikið flug og skoraði mun meira þannig að metið féll löngu fyrr.

Hér fyrir neðan má sjá þegar LeBron gengur í salinn sem og viðtalið við Gaiu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×