Körfubolti

Ætlar að biðjast afsökunar með því að kaupa handa honum bíl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jaylen Brown grípur um andlitið eftir að hafa fengið slysaolnbogann frá liðsfélaga sinum Jayson Tatum.
Jaylen Brown grípur um andlitið eftir að hafa fengið slysaolnbogann frá liðsfélaga sinum Jayson Tatum. AP/Charles Krupa

Jaylen Brown missti af leik Boston Celtics í NBA deildinni í körfubolta um helgina eftir að hafa fengið þungt högg frá liðsfélaga sínum í sigri á Philadelphia 76ers fyrir helgi.

Höggið frá Jayson Tatum var auðvitað slysahögg en olnbogi hans brákaði bein í efrikjálkabeini Brown.

Tatum skoraði 41 stig í næsta leik Boston liðsins sem liðið vann. Eftir leikinn talaði hann um olnbogann afdrifaríka.

„Mér líður eins og ég þurfi að kaupa handa honum bíl eða eitthvað,“ sagði Jayson Tatum.

„Auðvitað líður mér hræðilega yfir þessu en þetta var furðulegt slys. Hvort sem ég reddi handa honum grímu eða nýjum bíl þá er ég maður í það,“ sagði Tatum.

Boston Celtics liðið er með bestan árangur í Austurdeildinni og er það ekki síst vegna frábærar spilamennsku þeirra Tatum og Brown.

Jayson Tatum er með 30,8 stig, 8,6 fráköst og 4,5 stoðsendingar að meðaltali í leik en Jaylen Brown er með 26,5 stig, 7,0 fráköst og 3,2 stoðsendingar á meðaltali í leik. Ekkert smá tvíeyki þar á ferðinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×