Golf

Pebble Beach golfvöllurinn þurfti að breyta stórhættulegri golfholu hjá sér

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jordan Spieth slær á brúninni á áttundu holu Pebble Beach golfvallarins í fyrra.
Jordan Spieth slær á brúninni á áttundu holu Pebble Beach golfvallarins í fyrra. Getty/Kent Horner

Bandaríski kylfingurinn Jordan Spieth þótti sýna mikið hugrekki á Pebble Beach golfvellinum í fyrra en óaðvitandi skapaði hann líka með því vandamál.

Spieth tók ekki mark á ráðum kylfusveins síns sem vildi að hann sætti sig við vítið og reyndi frekar að slá boltann af brúnni á miklum klettavegg. Spieth setti sig þar í mikla hættu enda þurfti ekki mikið til að hann dytti niður eða að það myndi hrynja undan fótum hans.

Spieth var þarna að keppa á Pro-Am mótinu á Pebble Beach golfvellinum í Kaliforníu fylki.

Spieth tókst reyndar að bjarga parinu en talaði um það eftirá að hann sæi eftir því að hafa tekið svona mikla áhættu. Þetta högg hans var ekki fyrir lofthrædda eins og sjá má hér fyrir neðan.

Forráðamenn golfvallarins á Pebble Beach lentu hins vegar í því að margir kylfingar reyndu að leika eftir þetta skot. Þeir settu sig auðvitað í mikla hættu með því sem var ekki gott fyrir neinn. Það styttist í óhapp eða slys og eitthvað varð að gera.

Umsjónarmenn golfvallarins tóku því þá ákvörðun að færa vallarmörkin lengra frá brúnni og auka grasið fyrir utan völlinn þannig að litlar líkur væru á því að golfboltarnir færu þangað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×