Innlent

Þrek­virki á sjö­tugs­af­mælinu á­tján mánuðum eftir hjarta­að­gerð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sigmundur Stefánsson, afmælisbarn og hlaupari, í íþróttahöll Selfoss í dag.
Sigmundur Stefánsson, afmælisbarn og hlaupari, í íþróttahöll Selfoss í dag. Vísir/Egill

Sjötugur hlaupari á Selfossi fagnaði í dag afmælisdeginum með því að hlaupa fimmtíu kílómetra, einu og hálfu ári eftir opna hjartaaðgerð og krabbameinsmeðferð. Hann er vonsvikinn að hafa ekki náð sjötíu kílómetra markmiðinu en færð, veður og krampar settu strik í reikninginn. Við hittum afmælisbarnið á hlaupum.

Sigmundur Stefánsson á Selfossi er sjötugur í dag og ákvað fyrir nokkru síðan að á afmælisdaginn skyldi hann hlaupa sjötíu kílómetra, tíu sjö kílómetra hringi, og safna áheitum fyrir Krabbameinsfélag Árnesinga og Hjartaheill. Og það var frækinn hópur sem lagði af stað klukkan sjö við Sundhöll Selfoss í morgun en plön gengu ekki alveg eftir. 

Hvorki veður né færð voru nefnilega með besta móti í dag. Hlaupið, sem Sigmundur hefur nefnt Simmalinginn, var því fært inn í íþróttahöll Selfoss. 

Bara gleði þrátt fyrir allt

Og við hittum Sigmund í miðjum sjöunda hring síðdegis í dag. Hann kvað það vonbrigði að þurfa að stytta hlaupið en ofboðslegir krampar hafi því miður borið hann ofurliði.

„Ég var orðinn stífur allur. Það var verið að lengja pásurnar í morgun til að nudda. Hjúkkur og læknar og fleiri en svona er þetta bara, maðurinn er svona, við ráðum ekki við það. En það er bara gleði. Og við erum ákveðin í að halda áfram og það er bara frábært að vera búin með sjö hringi, þó að við höfum ætlað að taka þá tíu.“

Lífið heldur áfram

Sigmundur lauk meðferð við krabbameini í blöðruhálskirtli um áramótin og fyrir einu og hálfu ári gekkst hann undir opna hjartaaðgerð. Og hann hleypur með boðskap í huga.

„Við erum að benda fólki á það að lífið er ekki búið. Þú getur haldið áfram. Og við ætlum að halda áfram og klára þetta.“

Ég sé að þú ert með hóp með þér. Er búið að vera fjölmenni í allan dag? 

„Það er búið að vera fjölmenni í allan dag. Við byrjuðum tuttugu og einn í morgun, svo hefur þetta verið í kringum tíu manns í hverjum hring. Og bara gleði og allir ánægðir.“

Sannarlega eftirminnilegur afmælisdagur hjá Sigmundi sem stefndi á heita pottinn í Sundhöll Selfoss að loknu þrekvirki dagsins. Þá hyggst hann klára kílómetrana sjötíu þegar betur viðrar í sumar. Enn er hægt að heita á Sigmund á vef Hjartaheilla og Krabbameinsfélags Árnessýslu. Þegar þetta er ritað hefur Sigmundur samtals safnað næstum 680 þúsund krónum fyrir félögin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×