Erlent

Mögulega elsta múmía sem hefur fundist

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Fornleifafræðingar að störfum við Step-pýramídann í Saqqara.
Fornleifafræðingar að störfum við Step-pýramídann í Saqqara. Getty/Dawood

Fornleifafræðingar í Egyptalandi telja að 4.300 ára gömul múmía sé sú elsta sem fundist hefur í landinu. Múmían fannst á botni fimmtán metra langra jarðaganga í grafhýsi í Saqqara, nálægt höfuðborginni Kaíró.

Múmían er af manni sem nefndur hefur verið Hekashepes. Utan um múmíuna var steypuhræra og henni hafði verið vandlega komið fyrir í steinkistu sem búin var til úr kalkstein.

„Þessi múmía gæti verið elsta og best varðveitta múmía sem fundist hefur í Egyptalandi til þessa,“ sagði Zahi Hawass, fyrrverandi ráðherra minjaverndar í Egyptalandi.

Fleiri múmíur fundust á svæðinu, þar á meðal ein sem tilheyrði Khnumdjedef, sem var meðal annars prestur á valdatíma Unas, síðasta farós fimmtu ættarinnar. Grafhýsið var skreytt með myndum úr daglegu lífi Egypta á valdatímanum. Guardian greinir frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×