Heilsa

Hreyfum okkur saman: Rass- og læraæfingar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hreyfum okkur saman koma út á mánudögum og fimmtudögum á Vísi.
Hreyfum okkur saman koma út á mánudögum og fimmtudögum á Vísi. Stöð 2

Í fimmta þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks frábærar styrkjandi æfingar fyrir rass og lærvöðva þar sem notaður er stóll til að styðja sig við.

Um er að ræða æfingar sem sem þjálfa styrk, liðleika og auka vöðvaþolið.

Við vinnum hverja æfingu í 30 sekúndur og hvílum ekkert á milli. Einu áhöldin sem þú þarft eru dýna og stóll. Líkt og alltaf er æfingin í kringum fimmtán mínútur en þeir sem vilja meiri áskorun geta gert æfinguna oftar en einu sinni.

Klippa: Hreyfum okkur saman - Rass- og læraæfingar

Hreyfum okkur saman eru stuttir og fjölbreyttir æfingaþættir fyrir alla sem hafa heilsu til. Anna Eiríksdóttir leiðir þættina með frábærum æfingum og er markmiðið að fá sem flesta til að huga að heilsunni og hreyfa sig smá á hverjum degi.

Anna Eiríks hefur starfað við þjálfun í átján ár.Íris Dögg Einars

Þættirnir Hreyfum okkur saman eru sýndir hér á Lífinu á Vísi og Stöð 2+. Næstu vikurnar munu koma út tveir þættir á viku en eldri þætti má finna HÉR.

Anna Eiríks er stofnandi annaeiriks.is og er með Instagram síðuna instagram.com/aeiriks.


Tengdar fréttir

Hreyfum okkur saman: Sterkur kjarni

Í þriðja þættinum af þessari þáttaröð af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks frábærar æfingar fyrir kjarnavöðva líkamans.

Hreyfum okkur saman: Skemmtileg styrktaræfing

Í fyrsta þættinum af nýrri þáttaröð af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks fjölbreytar styrktaræfingar. Í æfingunni notar Anna diska sem renna en einnig er hægt að nota lítil handklæði eða tuskur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×