Handbolti

Topparnir í tölfræðinni á móti Kóreu: Óðinn greip gæsina og Viktor lokaði markinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson varði frábærlega í leiknum.
Viktor Gísli Hallgrímsson varði frábærlega í leiknum. Vísir/Vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann sannfærandi þrettán marka sigur á Suður-Kóreu, 38-25, í þriðja og síðasta leik sínum í riðlakeppninni á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Póllandi.

Óðinn Þór Ríkharðsson og Viggó Kristjánsson fengu sitt fyrsta tækifæri og voru iðnir við kolann í fyrri hálfleiknum. Óðinn skoraði átta mörk í hálfleiknum og Viggó gaf sex stoðsendingar fyrri hlé auk þess að skora tvö mörk.

Viktor Gísli Hallgrímsson byrjaði líka sinn fyrsta leik og var búinn að verja fimmtán skot í hálfleik. Óðinn greip gæsina með ellefu mörkum og Viktor Gísli varð 26 skot og yfir fimmtíu prósent skota sem hann fékk á sig.

Bjarki Már Elísson vantaði eitt mark upp á að skora níu mörk í þremur leikjum í röð en hann nýtti skotin sín áfram mjög vel.

Vísir fylgist vel með tölfræði íslenska liðsins á mótinu og hefur nú tekið saman þá leikmenn sem sköruðu fram úr í tölunum í þessum þriðja leik Íslands á mótinu.

Hér fyrir neðan má sjá toppa íslenska liðsins í tölfræðinni.

  • - Íslensku landsliðsmennirnir á móti Suður-Kóreu á HM 2023 -
  • Hver skoraði mest:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 11
  • 2. Bjarki Már Elísson 8/3
  • 3. Viggó Kristjánsson 6
  • 4. Janus Daði Smárason 4
  • 5. Aron Pálmarsson 2
  • 5. Gísli Þorgeir Kristjánsson 2
  • 5. Elliði Snær Viðarsson 2
  • 5. Arnar Freyr Arnarsson 2
  • -
  • Markahæstir í fyrri hálfleik:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 8
  • 2. Bjarki Már Elísson 5/2
  • 3. Viggó Kristjánsson 2 + 6 stoðsendingar
  • 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson 2 + 4 stoðsendingar
  • -
  • Markahæstir í seinni hálfeik:
  • 1. Viggó Kristjánsson 4
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 3
  • 2. Janus Daði Smárason 3
  • 2. Bjarki Már Elísson 3/1
  • -
  • Hver varði flest skot:
  • 1. Viktor Gísli Hallgrímsson 26/1 (51%)
  • -
  • Hver spilaði mest í leiknum:
  • 1. Viggó Kristjánsson 58:53
  • 2. Viktor Gísli Hallgrímsson 58:50
  • 3. Óðinn Þór Ríkharðsson 58:34
  • 4. Bjarki Már Elísson 40:19
  • 5. Arnar Freyr Arnarsson 32:22
  • -
  • Hver skaut oftast á markið:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 14
  • 2. Viggó Kristjánsson 11
  • 3. Bjarki Már Elísson 9/3
  • 4. Janus Daði Smárason 4
  • 5. Gísli Þorgeir Kristjánsson 3
  • -
  • Hver gaf flestar stoðsendingar:
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 8
  • 2. Viggó Kristjánsson 7
  • 3. Janus Daði Smárason 3
  • 4. Óðinn Þór Ríkharðsson 1
  • 4. Aron Pálmarsson 1
  • 4. Elvar Ásgeirsson 1
  • 4. Ólafur Guðmundsson 1
  • 4. Viktor Gísli Hallgrímsson 1
  • -
  • Hver átti þátt í flestum mörkum:
  • (Mörk + Stoðsendingar)
  • 1. Viggó Kristjánsson 13
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 12
  • 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson 10
  • 4. Bjarki Már Elísson 8
  • 5. Janus Daði Smárason 7
  • -
  • Hver stoppaði oftast í vörninni (HB Statz):
  • 1. Viggó Kristjánsson 4
  • 1. Ólafur Guðmundsson 4
  • 1. Elvar Ásgeirsson 4
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 4
  • 5. Ýmir Örn Gíslason 2
  • 5. Arnar Freyr Arnarsson 2
  • -
  • Mörk skoruð í tómt mark
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 1
  • -
  • Hver tapaði boltanum oftast:
  • 1. Viggó Kristjánsson 5
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 5
  • -
  • Flest varin skot í vörn:
  • 1. Arnar Freyr Arnarsson 2
  • 2. Ólafur Guðmundsson 1
  • -
  • Hver fiskaði flest víti:
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 2
  • 2. Viggó Kristjánsson 1
  • -
  • Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í sókn (HB Statz):
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 9,95
  • 2. Bjarki Már Elísson 9,64
  • 3. Janus Daði Smárason 8,96
  • 4. Viggó Kristjánsson 8,10
  • 5. Gísli Þorgeir Kristjánsson 7,49
  • -
  • Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í vörn (HB Statz):
  • 1. Arnar Freyr Arnarsson 7,51
  • 2. Elvar Ásgeirsson 7,32
  • 3. Elliði Snær Viðarsson 7,25
  • 4. Viggó Kristjánsson 7,03
  • 5. Ýmir Örn Gíslason 6,76
  • -
  • - Hvaðan komu flest mörk íslenska liðsins í leiknum -
  • 13 úr hraðaupphlaupum (7 með seinni bylgju)
  • 9 með gegnumbrotum
  • 7 af línu
  • 5 úr vinstra horni
  • 5 úr hægra horni
  • 3 með langskotum
  • 3 úr vítum
  • -
  • - Plús & mínus kladdinn í leiknum -
  • Mörk með langskotum: Suður-Kórea +4
  • Mörk af línu: Ísland +3
  • Mörk úr hraðaupphlaupum: Ísland +5
  • Tapaðir boltar: Jafnt
  • Fiskuð víti: Suður-Kórea +2
  • Varin skot markvarða: Ísland +15
  • Varin víti markvarða: Ísland +1
  • Misheppnuð skot: Suður-Kórea +12
  • Löglegar stöðvanir: Ísland +10
  • Refsimínútur: Jafnt
  • -
  • - Góðu og slæmu kaflarnir í leiknum -
  • Fyrri hálfleikurinn:
  • 1. til 10. mínúta: Ísland +3 (6-3)
  • 11. til 20. mínúta: Ísland +3 (7-4)
  • 21. til 30. mínúta: Jafnt (6-6)
  • Seinni hálfleikurinn:
  • 31. til 40. mínúta: Ísland +3 (7-4)
  • 41. til 50. mínúta: Ísland +5 (7-2)
  • 51. til 60. mínúta: Suður-Kórea +1 (6-5)
  • -
  • Byrjun hálfleikja: Ísland +6 (13-7)
  • Lok hálfleikja: Suður-Kórea +1 (12-11)
  • Fyrri hálfleikur: Ísland +6 (19-13)
  • Seinni hálfleikur: Ísland +7 (19-12)

Tengdar fréttir

Enginn í íslenska hópnum með Covid

Rétt í þessu voru að berast þau tíðindi að enginn í íslenska hópnum er með Covid 19 en hópurinn fór í hraðpróf eftir leikinn í kvöld og allir neikvæðir.

„Maður fær bara gæsahúð“

„Ég var bara mjög ánægður með leikinn og það var gaman að fá að spila,“ segir Óðinn Þór Ríkharðsson eftir frábæran þrettán marka sigur Íslands og Suður-Kóreu á HM í Kristianstad í kvöld. Liðið vann 38-25.

„Viður­kenni að þetta var rosa gaman“

„Það var bara skemmtileg upplifun. Frábær stemning, góður leikur og bara mjög gaman,“ sagði Ólafur Andrés Guðmundsson eftir þrettán marka sigur Íslands á Suður-Kóreu en Ólafur lék lengi vel með Kristianstad í Svíþjóð þar sem Ísland hefur leikið alla sína þrjá leiki til þessa.

„Þessi of­boðs­legi stuðningur er á heims­mæli­kvarða“

„Hún var frábær, rosaleg fagmennska sem einkenndi liðið,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, eftir 13 marka sigur Íslands á Suður-Kóreu í lokaleik liðanna í D-riðli á HM í handbolta. Sigurinn þýðir að Ísland er komið áfram í milliriðil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×