Mögnuð byrjun tryggði Portúgal sigur og Ís­land endar í öðru sæti

Andri Már Eggertsson skrifar
Úr leik kvöldsins.
Úr leik kvöldsins. Vísir/Vilhelm

Portúgal vann Ungverjaland örugglega í lokaleik D-riðils heimsmeistaramótsins í handbolta karla. Portúgal gekk í raun frá leiknum í upphafi með frábærri byrjun, lokatölur 27-20 sem þýðir að Ísland endar í 2. sæti D-riðils.

Það dró til tíðinda á fyrstu mínútu þegar Adrian Sipos, leikmaður Ungverja, fékk beint rautt spjald. Það sló liðsfélaga hans svo sannarlega út af laginu þar sem Ungverjar sáu ekki til sólar eftir rauða spjaldið.

Ungverjar skoruðu aðeins níu mörk í fyrri hálfleikVísir/Vilhelm

Vörn og markvarsla Portúgals var nánast fullkomin í fyrri hálfleik. Ungverjaland skoraði aðeins tvö mörk á átján mínútum. Miguel Ferreira, markmaður Portúgals, skellti í lás strax í upphafi leiks og var lengi vel með yfir áttatíu prósent markvörslu í fyrri hálfleik. Miguel Ferriera var einnig öflugur í seinni hálfleik og endaði með 15 varin skot. 

Portúgal var sjö mörkum yfir í hálfleik 16-9.

 

Klaufagangur Ungverja hélt áfram í síðari hálfleik. Tæknifeilar Ungverja reyndust dýrir og í hvert skipti sem Ungverjar gátu sett pressu á Portúgal þá kom lélegt skot, tvígrip, skref eða ruðningur. Spilamennska Ungverja í kvöld gerir tapið hjá Íslandi gegn þeim enn grátlegra. 

Portúgal vann sannfærandi sigur 27-20Vísir/Vilhelm

Það mátti ekki miklu muna að Ísland myndi lenda í efsta sæti riðilsins en það munaði aðeins einu marki. Það er hægt að telja ansi marga möguleika í leiknum þar sem Ungverjar misnotuðu dauðafæri. Leikurinn endaði með sjö marka sigri Portúgals 27-20. 

Pedro Portela gegn Marton SzekelyVísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira