Handbolti

Fimmtíu bestu: Markavél úr Eyjum, Bjarki Sig 2.0 og liðsauki frá Litáen

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmennirnir sem enduðu í 45.-41. sæti í valinu á þeim bestu í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.
Leikmennirnir sem enduðu í 45.-41. sæti í valinu á þeim bestu í efstu deild karla í handbolta á þessari öld. grafík/hjalti

Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 45.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

45. Hákon Daði Styrmisson

  • Lið: ÍBV, Haukar
  • Staða: Vinstra horn
  • Fæðingarár: 1997
  • Íslandsmeistari: 2016
  • Bikarmeistari: 2015, 2020
  • Deildarmeistari: 2016
  • Markahæstur í úrslitakeppni: 2016
  • Leikir í deild: 155
  • Mörk í deild: 662
  • Leikir í deild: 33
  • Mörk í deild: 197

Hákon Daði Styrmisson vakti fyrst athygli í bikarhelginni 2015 þar sem ÍBV stóð uppi sem sigurvegari eins og alltaf þegar liðið spilar í Laugardalshöllinni.

Hann hélt svo upp á fasta landið um tímabilið 2015-16 og gekk í raðir Hauka og það reyndist mikið heillaskref fyrir hann. Hákon var fínn í deildarkeppninni en það var bara smá blástur á undan fellibylnum.

Hákon var stórkostlegur í úrslitakeppninni og skoraði 94 mörk í tólf leikjum þegar Haukar unnu sinn þrettánda Íslandsmeistaratitil. Hann var aðeins einu marki frá því að jafna metið yfir flest mörk í úrslitakeppni sem þeir Róbert Julian Duranona og Valdimar Grímsson eiga saman.

Hákon Daði Styrmisson brosir út að eyrum eftir að hafa gert það sem hann gerir best; skora mörk.vísir/hulda margrét

Vorið er tími Hákons en hann var litlu síðri í úrslitakeppninni á sínu síðasta tímabili hér á landi (2020-21). Í fjórum leikjum skoraði hann 37 mörk, eða rúm níu mörk að meðaltali í leik, þegar ÍBV var hársbreidd frá því að komast í úrslit. Hákon hefur alls leikið 33 leiki í úrslitakeppni og skorað í þeim 197 mörk, eða 5,97 mörk að meðaltali í leik, og er einn markahæsti leikmaður í sögu hennar.

Sumarið 2021 hélt Hákon til Þýskalands þar sem hann hefur plummað sig vel eftir erfið meiðsli. Enda hefur hann allt það sem hornamaður þarf að hafa; snöggur fram og mikla skottækni og er auk þess pottþétt vítaskytta.

44. Árni Bragi Eyjólfsson

  • Lið: Afturelding, KA
  • Staða: Hægra horn/hægri skytta
  • Fæðingarár: 1994
  • Silfur: 2015, 2016
  • Valdimarsbikar: 2021
  • Besti leikmaður: 2021
  • Markakóngur í deild: 2021
  • Leikir í deild: 173
  • Mörk í deild: 831
  • Leikir í úrslitakeppni: 31
  • Mörk í úrslitakeppni: 127

Árni Bragi Eyjólfsson, Bjarki Sigurðsson sinnar kynslóðar, skaust upp á stjörnuhiminn íslenska handboltans tímabilið 2014-15. Nýliðar Aftureldingar enduðu í 2. sæti Olís-deildarinnar, slógu ÍBV út í átta liða úrslitunum og mættu svo ÍR í frábærri rimmu í undanúrslitunum.

Úrslitin réðust í oddaleik í Mosfellsbænum þar sem Árni Bragi var hetja heimamanna. Hann jafnaði í 25-25 undir lok venjulegs leiktíma og skoraði svo sigurmark Aftureldingar, 30-29, í framlengingunni.

Þetta var kannski eftirminnilegasti leikurinn á ferli Árna Braga en eftirminnilegasta tímabilið var eflaust 2020-21 þegar hann lék með KA. Þá lék ekki nokkur vafi á hver besti leikmaður Olís-deildarinnar var.

Árni Bragi Eyjólfsson er hluti af mjög sterkum árgangi leikmanna fæddra 1994 í Aftureldingu.vísir/hulda margrét

Það var Árni Bragi og hann sópaði til sín nánast öllum verðlaunum sem hægt var á lokahófi HSÍ. Hann var meðal annars valinn besti leikmaður deildarinnar af leikmönnum og þjálfurum og var markakóngur deildarinnar.

Árni Bragi sneri aftur í Mosfellsbæinn eftir draumatímabilið á Akureyri. Síðasta tímabil voru mikil vonbrigði hjá Aftureldingu í vetur hafa þeir rauðu og hvítu verið með læti og eru líklegir til afreka.

43. Alexander Örn Júlíusson

  • Lið: Valur
  • Staða: Vinstri skytta/varnarmaður
  • Fæðingarár: 1994
  • Íslandsmeistari: 2017, 2021, 2022
  • Bikarmeistari: 2016, 2017, 2021, 2022
  • Deildarmeistari: 2020, 2022
  • Besti varnarmaður: 2018
  • Leikir í deild: 218
  • Mörk í deild: 225
  • Leikir í úrslitakeppni: 51
  • Mörk í úrslitakeppni: 48

Fljótlega eftir að Alexander Örn Júlíusson kom inn í lið Vals var ljóst að þar væri afburða varnarmaður á ferð. Hann spilaði einhverja sókn fyrstu tímabilin og var alveg slarkfær en varnarleikurinn var alltaf hans ær og kýr. 

Alexander hefur verið í stóru hlutverki í síðustu þremur Íslandsmeistaraliðum Vals. Í meistaraliðinu 2017 spilaði hann sem bakvörður og átti stóran þátt í að stöðva Einar Rafn Eiðsson í úrslitaeinvíginu.

Alexander Örn Júlíusson er kominn í góða æfingu við að lyfta bikarnum.vísir/hulda margrét

Alexander var svo áfram prímusmótor í vörn meistaraliðanna 2021 og 2022. Hann er mikill og góður liðsmaður og hefur lagt mikið á sig til að komast þangað sem hann hefur komist.

Alexander verður ekki föðurbetrungur í boltanum en er þó búinn að vinna meira en karl faðir sinn. En hann er í andskoti góðu og stóru hlutverki í langbesta liði landsins og fyrirliði þess og það er hægt að hugsa mér margt miklu verra.

42. Andrius Stelmokas

  • Lið: KA
  • Staða: Línumaður
  • Fæðingarár: 1974
  • Íslandsmeistari: 2002
  • Bikarmeistari: 2004
  • Deildarmeistari: 2001
  • Silfur: 2001
  • Valdimarsbikar: 2004
  • Besti leikmaður: 2003
  • Leikir í deild: 99
  • Mörk í deild: 545
  • Leikir í úrslitakeppni: 30
  • Mörk í úrslitakeppni: 126

KA-menn hafa sjaldnast margt gott um granna sína í Þorpinu að segja. En frá þeim fengu þeir einn besta leikmenn sem hefur spilað í gula og bláa búningnum.

Eftir eitt tímabil með Þór gekk lítáíski línumaðurinn Andrius Stelmokas í raðir KA aldamótaárið 2000. Og hann var kletturinn sem þeir byggðu seinna velmegunarskeið sitt á.

Tímabilið 2000-01 varð KA deildarmeistari í þriðja sinn og komst í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn þar sem liðið tapaði fyrir Haukum í oddaleik. Tímabilið á eftir komst KA aftur í úrslit og fór aftur í oddaleik en vann þar Val, þrátt fyrir að hafa lent 2-0 undir. Stelmokas var næstmarkahæstur KA-manna í úrslitaeinvíginu með 21 mark úr aðeins 28 skotum. KA varð svo bikarmeistari í þriðja sinn 2004 eftir öruggan sigur á Fram í úrslitaleik.

Andrius Stelmokas laumar sér á milli Sigfúsar Sigurðssonar og Bjarka Sigurðssonar í úrslitaeinvígi KA og Vals 2002.þórir tryggvason

Þegar Stelmokas kvaddi KA vorið 2004 hafði hann því unnið þrjá stóra titla með liðinu og komið sér í goðsagna tölu hjá stuðningsmönnum liðsins. 

Hann var frábær varnarmaður og einn albesti línumaður sem hefur leikið hér á landi. Ekki mesti hæfileikamaðurinn en vann það upp með dugnaði, krafti, baráttu og leiklestri.

Aðrir en KA-menn gerðu sér líka grein fyrir hversu góður Stelmokas var. Til marks um það völdu leikmenn hann bestan í deildinni 2003 og þjálfarar árið eftir.

41. Giedrius Morkunas

  • Lið: Haukar
  • Staða: Markvörður
  • Fæðingarár: 1987
  • Íslandsmeistari: 2015, 2016
  • Bikarmeistari: 2014
  • Deildarmeistari: 2013, 2014, 2016
  • Silfur: 2013, 2014
  • Valdimarsbikar: 2015
  • Besti markvörður: 2016
  • Leikir í deild: 117
  • Mörk í deild: 11
  • Leikir í úrslitakeppni: 41
  • Mörk í úrslitakeppni: 1

Það fór ekki mikið fyrir því þegar Haukar fengu 25 ára markvörð frá Litáen fyrir tímabilið 2012-13. Þetta var Giedrius Morkunas og þetta reyndust ein bestu félagaskipti í sögu Hauka.

Morkunas var varamarkvörður fyrir Aron Rafn Eðvarðsson fyrsta tímabil sitt á Ásvöllum en tók svo við aðalmarkvarðarstöðunni 2013 og hélt henni þar til hann hélt af landi brott 2017 og gekk í raðir Riihimäki Cocks í Finnlandi.

Morkunas var magnaður í úrslitakeppninni 2014 og 2015. Fyrra tímabilið var hann með 41,1 prósent hlutfallsmarkvörslu. Í úrslitaeinvíginu gegn ÍBV var hlutfallsvarsla Morkunas 45,6 prósent sem er fáránlega góð tölfræði. Það dugði Haukum þó ekki til að verða meistarar.

Giedrius Morkunas varð tvívegis Íslandsmeistari með Haukum.vísir/vilhelm

Það breyttist tímabilið eftir þar sem Haukar unnu alla átta leiki sína í úrslitakeppninni. Morkunas var frábær eins og tímabilið á undan og var með 45 prósent hlutfallsvörslu í átta leikjum í úrslitakeppninni. Morkunas var verðskuldað valinn besti markvörður deildarinnar 2015.

Haukar vörðu titilinn árið eftir en Morkunas náði þá ekki alveg sömu hæðum enda erfitt að viðhalda sama árangri og árin tvö á undan. Hann var samt í kringum fjörutíu prósentin.

Alls lék Morkunas með Haukum í fimm tímabil. Á þeim unnu þeir sex stóra titla og Morkunas átti ekki lítinn þátt í því. Hann var sannkallaður Goggi mega í Haukabúningnum.


Tengdar fréttir

Fimmtíu bestu: 50.-46. sæti

Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-46. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×