Innherji

Arctic Ther­a­pe­ut­ics fær tæp­leg­a tveggj­a millj­arð­a krón­a fjár­mögn­un

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Hákon Hákonarsson stofnaði Arctic Therapeutics. Hann er læknir og sérfræðingur í lungna- og genarannsóknum við Center of Applied Genomics (CAG) hjá Barnaháskólasjúkrahúsi Fíladelfíu og Háskóla Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. 
Hákon Hákonarsson stofnaði Arctic Therapeutics. Hann er læknir og sérfræðingur í lungna- og genarannsóknum við Center of Applied Genomics (CAG) hjá Barnaháskólasjúkrahúsi Fíladelfíu og Háskóla Pennsylvaníu í Bandaríkjunum.  Aðsend

Íslenska erfða- og líftæknifyrirtækið Arctic Therapeutics (AT) hefur tryggt sér 12,5 milljón evra fjármögnun, sem samsvarar rúmlega 1,9 milljarði íslenskra króna, frá Evrópska nýsköpunarráðinu (European Innovation Council, EIC).

Fjármögnunin er í formi styrks að virði 2,5 milljónir evra (um 380 milljónir króna) auk 10 milljóna evra (um 1,5 milljarðar króna) hlutafjárframlags frá fjárfestingarmi stofnunarinnar, EIC Fund. Fjármagnið verður nýtt til þess að hefja næsta þróunarfasa á lyfi fyrirtækisins við ættgengri íslenskri heilablæðingu. 

The EIC Fund er evrópskur fjárfestingarsjóður í eigu Evrópusambandsins. Hann var stofnaður sumarið 2020 með það að markmiði að fjárfesta í og styðja við öflug sprotafyrirtæki í Evrópu, gera þeim kleift að vaxa hraðar og auka samkeppnishæfni Evrópu gagnvart Asíu og Bandaríkjunum.

Íslenskir og erlendir fjárfestar hafa einnig sýnt AT „verulegan áhuga“ að undanförnu og reiknar félagið með að sækja sér að minnsta kosti 10 milljónir evra til viðbótar á komandi mánuðum til að styðja enn frekar við vöxt og hraða lyfjaþróun sem mun fara fram á Íslandi, að því er segir í tilkynningu.

Við erum í einstakri stöðu til þess að verða eitt af fyrstu fyrirtækjunum á heimsvísu til þess að koma lyfi við heilbilun á markað.

AT er með 10 starfsmenn á Íslandi og til stendur að ráða 10-20 starfsmenn til viðbótar á næstu mánuðum. Áætlað er að starfsmenn verði um 25 í lok næsta árs.

Rannsóknir AT sýna einnig fram á virkni gegn heilabilun af öðrum orsökum, þar á með Alzheimer-sjúkdómnum, og mun þar með geta aukið lífsgæði milljóna manna um allan heim með því að koma í veg fyrir og meðhöndla sjúkdóminn.

„Það er mikil viðurkenning á verkefninu að EIC hafi samþykkt að fjármagna það. Fjármögnunin er stærsta fjármögnun sinnar tegundar sem íslenskt fyrirtæki hefur tryggt sér frá EIC Funds,“ segir Ívar Hákonarson, forstjóri AT. „Við erum í einstakri stöðu til þess að verða eitt af fyrstu fyrirtækjunum á heimsvísu til þess að koma lyfi við heilbilun á markað, en um 55 milljónir manna berjast við sjúkdóminn á hverju ári og það hefur ekki tekist enn að þróa árangursríka meðferð við honum,“ bætir hann við.

Arctic Therapeutics var valið eitt framsæknasta fyrirtæki Evrópu á sviði erfðavísinda og lyfjaþróunar fyrr á árinu af Life Sciences Review, sem er leiðandi tímarit um líftækni í Bandaríkjunum og Evrópu. Ívar Hákonarsson, forstjóri íslenska fyrirtækisins, prýðir forsíðuna.

AT var stofnað af Hákoni Hákonarssyni, lækni og sérfræðingi í lungna- og genarannsóknum við Center of Applied Genomics (CAG) hjá Barnaháskólasjúkrahúsi Fíladelfíu og Háskóla Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Lyfjaþróun AT byggir á 16 ára erfðarannsóknum í samstarfi við CAG.

„Ég er einstaklega stoltur af því að þrotlaus vinna síðustu ára sé að skila áþreifanlegum árangri, og það er sérstaklega ánægjulegt hafa tækifæri til þess að byggja upp framúrskarandi nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi,“ segir Hákon. „Hefðbundin frumheitalyfjaþróun er dýr, tímafrek og henni fylgir mikil áhætta – kostnaður við að koma frumheitalyfi á markað kostar tvo til þrjá milljarða Bandaríkjadala. Með því að nota erfðafræðirannsóknir er hægt að draga verulega úr áhættu við lyfjaþróun og stytta þróunarferlið um mörg ár og lækka kostnað mikið,“ segir hann.

Fjármögnunin fylgir í kjölfarið á frekari viðurkenningu um mikilvægi starfsemi félagsins á sviði erfðafræðirannsókna til þess að styðja við markvissari lyfjaþróun. Fyrr á árinu var félagið valið eitt framsæknasta fyrirtæki Evrópu á sviði erfðavísinda og lyfjaþróunar af Life Sciences Review, sem er leiðandi tímarit um líftækni í Bandaríkjunum og Evrópu.

Ísland er einstaklega hentugur staður til að byggja upp fyrirtæki eins og Arctic Therapeutics.

AT er með fjögur önnur lyfi í þróun, þar á meðal lyf við hinum ýmsu húð- og bólgusjúkdómum, sem einnig byggja á sömu nálgun. Kostnaður við lyfjaþróunina er aðeins að brot af því það sem það kostar að koma hefðbundnu frumheitalyfi á markað, en heildarmarkaðstærð þeirra lyfja sem AT er með í þróun er vel yfir 100 milljarðar Bandaríkjadala.

„Ísland er einstaklega hentugur staður til að byggja upp fyrirtæki eins og AT,“ segir í tilkynningunni. „Það hefur skapast mikil reynsla og þekking á erfðafræði og lyfjaþróun á Íslandi samhliða vexti fyrirtækja eins og Íslenskrar erfðagreiningar, Actavis og Alvotech svo dæmi séu tekin, og það mun gera félaginu kleift að tryggja sér hæfileikaríkt starfsfólk til þess að keyra áfram komandi vaxtarferli. Auk lyfja í þróun, starfrækir AT íslenskan erfða- og ættfræðirgrunn og rannsóknarstofu á Akureyri, sem er tengd við sjúkraskrárkerfi landsmanna. Félagið hefur einnig tryggt sér leyfi til þess að byggja upp lífsýnasafn á Íslandi á næstu árum. Þangað til að lífsýnasafnið verður nægilega viðamikið til þess að nýtast sem best við lyfjaþróun félagsins mun AT starfa áfram náinni samvinnu við CAG í Bandaríkjunum.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×