Jól

Bregður sér í allra kvikinda líki í að­draganda jólanna

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Förðunarfræðingurinn Embla Wigum galdrar fram hverja jólaförðunina á fætur annarri.
Förðunarfræðingurinn Embla Wigum galdrar fram hverja jólaförðunina á fætur annarri.

Förðunarfræðingurinn Embla Wigum, sem slegið hefur í gegn á samfélagsmiðlinum TikTok, heldur úti afar skemmtilegu jóladagatali á samfélagsmiðlum sínum. 

Embla er búsett í London ásamt kærasta sínum, athafnamanninum Nökkva Fjalari Orrasyni. Embla hefur verið að gera það virkilega gott á TikTok. Hún er með rúmlega tvær milljónir fylgjendur en tugir milljóna hafa horft á vinsælustu myndbönd hennar. Þá hlaut Embla einnig tilnefningu sem framúrskarandi ungur Íslendingur á þessu ári fyrir afrek sín á sviði menningar.

Tólf farðanir fyrir jól

Dagatalið sem Embla kallar „12 Days of Christmas“ gengur út á það að hún sýnir tólf mismunandi jólafarðanir í aðdraganda jóla. Embla hefur verið með samskonar niðurtalningu til jóla síðustu ár sem slegið hefur rækilega í gegn og ákvað hún því að endurtaka leikinn.

Hér er þó ekki beint um að ræða hefðbundnar jólafarðanir sem auðvelt er að leika eftir á aðfangadagskvöld, heldur eru þetta svokallaðar fantasíufarðanir, sem Embla er einmitt þekktust fyrir. Í viðtali við Vísi á síðasta ári sagði Embla frá því að hún eyddi allt frá tveimur til sjö klukkustundum í hvert förðunarmyndband sem hún setur á TikTok.

Í byrjun desember birti Embla lista með tólf jólapersónum eða fyrirbærum sem farðanirnar áttu að byggjast á. Á þeim lista var að finna frostbit, hnotubrjót, jólastaf, hvít/rauð jól, gjafapappír, piparkökur, tröllið sem stal jólunum, sykurplómudísina, Rúdolf, Önnu úr Frozen, konu jólasveinsins og jólatrúð.

Tröllið sem stal jólunum

Hér að neðan má sjá fyrstu förðunina þar sem Embla breytir sér í Tröllið sem stal jólunum á ótrúlegan hátt. Þegar þetta er skrifað hafa um fjórar milljónir manns horft á myndbandið.

@emblawigum 12 days of christmas YAAYY so excited for this series!! Day 1: Grinch sponsored by @realtechniquesofficial available at @bootsuk You're a Mean One, Mr. Grinch - Tyler, The Creator

Hvít og rauð jól

Hér má svo sjá hvernig Embla galdrar fram förðun sem innblásin er af hvítum og rauðum jólunum. Eins og sjá má spilar tónlist stórt hlutverk í myndböndum Emblu. Hér notast hún við lagið Snow & Heat Miser úr jólaþættinum The Year Without A Santa Claus frá árinu 1974.

@emblawigum 12 days of christmas Day 2: White christmas / Green christmas MY FAVE TREEEND! Sponsored by @realtechniques Snow meiser Heat meiser mix by Mike DiNardo - Mike DiNardo

Rúdolf með rauða trýnið

Hér má svo sjá þriðju förðunina en þar breytir Embla sér í sjálfan Rúdolf.

@emblawigum 12 days of christmas Day 3: Rudolf the red nosed reindeer Sponsored by @realtechniques, available at @Boots UK @beautyklubburinn original sound - Taylor

Jólatrúður

Ógnvekjandi trúðar hafa vonandi ekki sérstaka tengingu við jólin hjá mörgum. Í næsta myndbandi gefur Embla hugmyndafluginu þó lausan tauminn og töfrar fram skemmtilega förðun sem innblásin er af ógnvekjandi jólatrúð.

@emblawigum 12 Days of christmas Day 4: Christmas Clown Sponsored by @realtechniques_uk @beautyklubburinn ib: @sarahnewsfx Santa Baby - Eartha Kitt

Piparkökukarl

Næsta förðun er innblásin af piparkökukarli. Embla breytir sér þó ekki í neinn hefðbundinn piparkökukarl, heldur notast hún við gerviaugnhár og hárkollu til að gera lúkkið að sínu. Útkoman er hreint út sagt stórkostleg.

@emblawigum 12 days of christmas Day 5: Gingerbread cookie sponsored by @Real Techniques UK available on @amazonuk & @beautyklubburinn ib: @khaleesiisaa Gingerbread Man - Melanie Martinez

Sykurplómudísin

Sykurplómudísina þekkja einhverjir úr ævintýrinu sígilda um Hnotubrjótinn sem hefur mikla tengingu við jólin hjá mörgum. Hér gerir Embla sína eigin útfærslu af sykurplómudísinni með bleikri og fjólublárri förðun, áberandi gerviaugnhárum og bleikri hárkollu

@emblawigum 12 days of christmas Day 6: Sugarplum Fairy sponsored by @Real Techniques UK @beautyklubburinn AD #christmasmakeup Tchaikovsky: Dance of The Sugar Plum Fairy (From The Nutcracker Suite) - Dreamscape Cinema Orchestra

Bismark drottning

Hvíti og rauði jólastafurinn eða bismark eins og hann kallast er eftirlæti margra um jólin. Í þessari förðun breytir Embla sér í svokallaða bismark drottningu. Neðri hluti andlitsins er málaður eins og jólastafur en bleik skygging er á augunum. Þá er hún með hvíta hárkollu, hvít gerviaugnhár, hvítar augabrúnir og kórónu sem minnir á snædrottninguna úr ævintýri H.C. Andersen.

@emblawigum 12 days of christmas Day 7: Candycane Queen sponsored by @Real Techniques UK @bootsuk @beautyklubburinn ib: @khaleesiisaa original sound - Holidaymix

Kona jólasveinsins

Hér breytir Embla sér í eiginkonu jólasveinsins sem hefur komið fram í hinum ýmsu ævintýrum. Í myndbandinu má sjá hvernig hún breytir húðinni, býr til hrukkur og kallar fram útitekið útlit.

Hnotubrjóturinn

Nýjasta förðunin kom inn í gær. Embla sýndi förðunina með afar metnaðarfullu myndbandi þar sem hún hafði ekki bara breytt sér í Hnotubrjótinn, heldur einnig sögupersónuna Klöru úr sama ævintýri.

Nú eru aðeins þrjár farðanir eftir og verður spennandi að fylgjast með því hvernig Embla útfærir þær.

@emblawigum Nutcracker inspo: @hedda.hjd & @Sarah New #makeuptransformation Snowman - Sia

Tengdar fréttir

Tilnefnd sem framúrskarandi ungir Íslendingar

Junior Chamber International á Íslandi (JCI) verðlaunar framúrskarandi unga Íslendinga í 21. skipti í ár. Dómnefnd hefur farið yfir tilnefningar og valið tíu einstaklinga sem hljóta viðurkenningu. Einn hlýtur svo verðlaunin.








×