Erlent

Haraldur Noregs­konungur lagður inn á sjúkra­hús

Atli Ísleifsson skrifar
Haraldur Noregskonungur er 85 ára gamall.
Haraldur Noregskonungur er 85 ára gamall. EPA

Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á Ríkissjúkrahúsið í Osló.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá norsku konungshöllinni í morgun. 

Þar segir að konungurinn glímir við sýkingu og að hann þurfi að fá sýklalyf í æð. Því þurfi hann að leggjast inn á sjúkrahús í fáeina daga.

Ástand hins 85 ára konungs er sagt vera stöðugt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×