Bílar

Raf­mótor­hjól frá sprota­fyrir­tækinu Matter með fjögurra gíra skiptingu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Beinskipta rafmótorhjólið frá Matter.
Beinskipta rafmótorhjólið frá Matter.

Allflest rafmótorhjól hafa enga skiptingu, einungis einn gír áfram og inngjöfin virkar bara í eina átt. Slíkt hentar nýliðum í akstri mótorhjóla. Reynslumeira fólk kann að sakna þess að keyra beinskipt hjól. Sprotafyrirtækið Matter ætlar að svala þessari þörf.

Hjólið sem indverska fyrirtækið Matter hefur kynnt er fjögurra gíra rafmótorhjól með gömlu góðu beinskiptingunni. Hjólið er 14,1 hestafl og allt afl fer til afturhjólsins frá 5 kWh vökvakældu rafhlöðunni.

Drægnin er ekki gefin upp en hleðslutími í venjulegri innstungu er fimm klukkutímar. Aðrir hleðslumöguleikar sem taka styttri tíma verða mögulegar, samkvæmt Matter, án þess að fleira sé gefið upp um það.

Hjólið hefur ekki fengið nafn ennþá en framleiðslan mun fara fram í verksmiðju Matter í Changodar á Indlandi. Framleiðslugeta verksmiðjunnar er um 60.000 eintök á ári. Matter vill auka framleiðsluna upp í um 200.000 eintök í náinni framtíð.

„Á meðan flest önnur sprotafyrirtæki eru að hugsa um rafmagns vespur erum við að koma með mótorhjól með gírskiptingu. Það er ekkert annað alvöru fyrirtæki að hugsa um þessa gerð af farartæki eins og er. Vaxtarmöguleikarnir eru miklir,“ sagði Mhal Lalbhai framkvæmdastjóri Matter.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×