Lífið samstarf

Sumac hrærir upp í jólunum með framandi kryddi

Sumac
Matarmenning Norður Afríku einkennir matseðli veitingastaðarins Sumac.
Matarmenning Norður Afríku einkennir matseðli veitingastaðarins Sumac.

„Jólaseðillinn okkar er allt annað en hefðbundinn. Við kryddum upp á jólin í staðinn fyrir hefðirnar og sækjum innblástur frá Norður Afríku til Líbanon. Kryddin þaðan og matreiðsluaðferðirnar skína í gegn í öllum okkar réttum hjá yfirkokkinum okkar Jakobi Baldvinssyni. Þú færð ekki matinn okkar annarsstaðar í bænum,“ segir Þráinn Freyr Vigfússon, eigandi og kokkur á veitingastaðnum Sumac.

„Við erum með kolagrill sem flest allur matur fer á hjá okkur og ilmurinn inni á staðnum ber þess keim. Við vinnum mikið með grænmeti, grillum það og bökum og erum stöðugt að þróa réttina í áttina að matreiðslustíl landa eins og Líbanon,“ segir Þráinn sem ferðaðist um Norður Afríku og kynnti sér matargerð og menningu landanna við Miðjarðarhafið.

Grillað brauð og dýfur er meðal þess sem boðið er upp á.

„Ég var mjög forvitinn um þessa matarmenningu og fannst vanta svona mat á Íslandi. Þegar ég var að leita að hugmynd að systurveitingastað ÓX, sem ég rek einnig, ákvað ég að skoða þetta og fór bara í að heimsækja þessi lönd og leita að innblæstri. Nú er Sumac orðinn fimm ára og okkar aðalviðskiptavinahópur er íslenski markaðurinn. Við erum komin með nokkuð stóran hóp fastagesta,“ segir Þráinn.

Hvað er þá eiginlega á jólamatseðlinum?

„Ja, ekki hangikjöt og ekki dill eða súrar gúrkur. Jólaseðillinn telur átta rétti og þar er mikið um grænmeti og grillað flatbrauð, sósur til að dýfa í, grilluð bleikja með austurlensku þema og hægeldaður lambaháls sem hefur legið í kryddlegi í góðan tíma svo hann er mjög bragðmikill. Það er gaman að brjóta aðeins upp hefðirnar og prófa eitthvað annað í desember,“ segir Þráinn.

„Við tökum á móti hópum og getum boðið upp á prívat herbergi sem við vorum að taka í notkun. Þar geta hópar allt að 16 manns verið út af fyrir sig.

Við hlökkum mikið til að taka á móti gestum á aðventunni. Við verðum með opið á Þorláksmessu fram yfir hádegi og hvetjum fólk til að kíkja til okkar í einn eða tvo rétti á Þollák meðan það klárar jólainnkaupin,“ segir Þráinn.

Sumac er veitingastaður vikunnar á Vísi. Nánar má kynna sér matseðil Sumac hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×