Innlent

Öryggis­mynda­vélar um borð en engin upp­taka af slysinu

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Sighvatur er í eigu Vísis hf og gerður út frá Grindavík.
Sighvatur er í eigu Vísis hf og gerður út frá Grindavík. Vísir/Vilhelm

Leitin að skipverjanum sem féll frá borði við Garðskagavita á laugardag hefur enn engan árangur borið. Lögreglan á Suðurnesjum segir að öryggismyndavélar hafi verið um borð en myndbandsupptaka sé ekki til af slysinu.

Skipverjinn á Sighvati GK-57 í Grindavík sem leitað hefur verið að frá því á laugardag heitir Ekasit Thasaphong og er fæddur árið 1980. Hann býr í Grindavík ásamt eiginkonu og þremur börnum.

Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, greindi frá nafni skipverjans í tilkynningu í gær sem send í samráði við fjölskyldu hans.

Áhöfnin á varðskipinu Þór heldur leit áfram í dag. Leitað er með neðansjávarfari frá Teledyne Gavia á svæðinu þar sem talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að neðansjávarfarið sé útbúið sérstakri hliðarhljóðsjá auk myndavélar sem nýtist við athugun sjávarbotnsins. Þyrla Landhelgisgæslunnar er einnig nýtt til leitar í dag.

Sveinbjörn Halldórsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem fer með rannsókn málsins, segir að skýrslutökum vegna málsins sé lokið. Skipstjóri Sighvats sé sá eini sem hafi verið kallaður til. Enginn grunur sé um að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað eða að eftirlit hafi ekki verið fullnægjandi. Rannsókn málsins sé einnig í höndum rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Öryggismyndavélar séu um borð í Sighvati en slysið hafi ekki náðst á upptöku. Menn telji sig þó vita með nokkurri vissu hvar maðurinn féll útbyrðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×