Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Klassísk ís­­lensk rómantík undir ljúfum tónum Nylon stúlkna

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Hljómsveitin Nylon.
Hljómsveitin Nylon.

Í stressinu og hraðanum í desember er nauðsynlegt að gefa sér tíma inn á milli til að setjast niður, kveikja á kertum, láta ljúfa tóna á fóninn og slaka á. Lag dagsins í dag, 6. desember er einmitt hugsað fyrir slíka stemningu.

Árið er 2004 var merkilegt ár fyrir margar sakir. Stúlknasveitin Nylon var á hápunkti frægðar sinnar þetta góða ár. Lagið Bara í nótt kom út og varð fljótt eitt vinsælasta lag landsins, enda hugljúft og fallegt. Myndbandið er sannarlega ekki síðra.

Í byrjun myndbands sjást stúlkurnar í hljómsveitinni, Alma, Klara, Steinunn og Emilía mæta í Þjóðleikhúsið og fylgst er með þeim mála sig og klæða fyrir tónleika. Engu er til sparað og eru þær allar stórglæsilegar.

Sýnt er frá tónleikunum í myndbandinu og lítil ástarsaga fléttuð inn í. Þar sjást tónleikagestir, ung kona og maður, gefa hvort öðru auga og virðast lítast ansi vel á hvort annað. Kvöldið líður og nokkrir drykkir renna ljúft niður eins og gengur og gerist. Í lok myndbandsins sést unga fólkið svo stinga sér saman inn í leigubíl undir ljúfum tónum Nylon stúlkna, „bara í nótt, bara við tvö.“

Klassísk, íslensk rómantík eins og hún gerist best.

Lag dagsins er Bara í nótt með Nylon.








×