Jól

Jóladagatal - 21. desember - Trölladeig

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Skjóða kallar trölladeig bara deig. Enda er hún tröllastelpa og þess vegna er ekkert sérstaklega tröllalegt við þetta deig frekar en annað sem hún notar uppi í tröllahelli. Hurðaskellir passar sig að leiðrétta hana og saman kenna þau okkur að baka skemmtilegt jólaskraut til dæmis til að hengja á jólatréð.

Klippa: 21. desember - Trölladeig - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×