Jól

„Kransarnir mínir eru full­kom­lega ó­full­komnir“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Lára Ósk er mikill fagurkeri.
Lára Ósk er mikill fagurkeri. Vilhelm Gunnarsson

Lára Ósk Hjörleifsdóttir lífskúnstner og fagurkeri segir eftirspurn eftir viðburðum tengdum skreytingum og einstakri framsetningu mun meiri hér á landi en hún gerði sér grein fyrir. Í aðdraganda jóla töfrar Lára fram hvern jólakransinn á fætur öðrum.

Náttúrulegt yfirbragð einkennir kransana sem eru meðal annars gerðir úr hreindýramosa, lyngi, greni og afskornum blómum. Blómunum er stungið í kransinn í lokin sem setur punktinn yfir i-ið  á heildarmyndina 

Lára notast við náttúrlegan efnivið svo sem lyng, mosa, greni og afskorin blóm.Vilhelm Gunnarsson

„Ég reyni að velja blóm sem halda vissum sjarma þrátt fyrir að kransarnir þorni. Þegar maður notar efniviðinn á frjálsan hátt verður útkoman oft svo áreynslulaus og skemmtileg. Kransarnir mínir eru fullkomlega ófullkomnir og það er það sem gerir þá fallega að mínu mati,“ segir Lára.

„Mér finnst líka mikilvægt að nýta skreytingarnar aftur og aftur en ég endurnýtti t.d. aðventukransinn minn í fyrra sem skreytingu á langborð á þorrablóti, mánuði eftir jól,“ bætir hún vð.

Lára segist sækja innblástur í náttúruna og kemur sjaldan tómhent heim úr göngu um Mosfellsbænum þar sem hún býr ásamt eiginmanni og þremur börnum. 

Að sögn Láru heillast hún að skandinavískum einfaldleika og ótakmörkuðum möguleikum þegar kemur að sköpunargerð.

Lára Ósk bjó lengi vel í Danmörku og er því óumflýjanlega undir skandínavískum áhrifum.Vilhelm Gunnarsson

„Ég bjó lengi vel í Kaupmannahöfn og það er ekki hægt að segja annað en að ég sé undir mjög dönskum áhrifum, hlutirnir þurfa ekki að vera klipptir og skornir hentar mér ágætlega,“ segir Lára og bætir við að danski hönnuðurinn Tage Andersen sé í miklu uppáhaldi: 

„Ég tengi einstaklega vel við stílinn hans og litatóna.“

Aðspurð hvað hafi komið henni í viðburðahald segir Lára það hafa sprottið upp eftir hópefli á vinnustað vinkonu. Vinsældirnar hafi ekki staðið á sér og hefur hún ekki undan í aðdraganda jóla.

„Í rauninni stóð aldrei til að halda námskeið en einhvern veginn spurðist þetta það hratt út. Ég ákvað að bjóða upp á hópefli fyrir vinnustaði og vatt það hratt upp á sig. Út frá því hef ég tekið að mér að skreyta fyrir ýmis fyrirtæki og heimili,“ segir Lára.

Hér má sjá fallegan aðventustjaka.Vilhelm Gunnarsson
Hreindýramosi og afskorin blóm er falleg blanda.Vilhelm Gunnarsson
Fullkomlega ófullkominn grenikrans.Vilhelm Gunnarsson








×