Reikningurinn var opnaður nú í nótt en fyrir rúmum sólarhring blés Musk, sem nýlega keypti Twitter og tók við stöðu forstjóra miðilsins, til skoðanakönnunar á aðgangi sínum þar sem hann spurði einfaldlega hvort opna ætti á aðgang Trumps, sem hefur verið lokaður síðan í janúar á síðasta ári.
Reinstate former President Trump
— Elon Musk (@elonmusk) November 19, 2022
Rúmlega 15 milljónir tóku þátt í könnuninni og greiddu 52 prósent atkvæði með því að opna aftur á reikning forsetans fyrrverandi. Reikningi Trump var lokað af þáverandi stjórnendum Twitter eftir árásina á þinghús Bandaríkjanna 6. janúar 2021. Töldu stjórnendur miðilsins að Trump hefði með tístum sínum hvatt fylgjendur sína til óeirða og ofbeldis.
Í kjölfarið reyndi Trump ítrekað að fá aðgang sinn aftur, en hann var afar virkur á miðlinum á árum áður, bæði sem forseti og áður en hann tók við embættinu árið 2017.
Hefur haldið til á eigin miðli
Þó aftur hafi verið opnað á aðgang forsetans fyrrverandi er alls óljóst hvort hann muni nýta sér hann í jafn ríkum mæli og áður en hann hefur að undanförnu stuðst við miðilinn Truth Social. Miðillinn var stofnaður til höfuðs Twitter, af fyrirtæki Trumps sjálfs, í október 2021.
Trump virðist þá ekki hafa haldið þeim fjölda fylgjenda sem hann var með áður en lokað var á hann. Þegar þetta er skrifað eru um tvær klukkustundir síðan aðgangurinn var opnaður aftur, en þegar hafa 2,2 milljónir manna gerst fylgjendur hans á miðlinum.
Á dögunum lýsti Trump því yfir að hann hygðist bjóða sig aftur fram til embættis forseta Bandaríkjanna. Hann sóttist eftir endurkjöri í kosningunum 2020, en tapaði þá fyrir Joe Biden, núverandi Bandaríkjaforseta.
Framtíðin óljós hjá Twitter
Nokkuð hefur gustað um Musk og Twitter frá því hann keypti miðilinn og tók við stjórnartaumum hans. Á dögunum virðast hundruðir starfsmanna hafa kosið að hætta hjá fyrirtækinu í stað þess að gangast undir afarkosti Elon Musk um að starfsmenn skuldbittu sig til að vinna langa og stranga vinnudaga ellegar hættu.
Erlendir miðlar segja að meðal þeirra sem völdu frekar að ganga á braut séu margir tæknimanna fyrirtækisins, sem hafi hingað til séð til þess að halda samfélagsmiðlinum gangandi. Yfirmenn eru sagðir velta því fyrir sér að biðla til starfsmanna um að snúa aftur.