Tíska og hönnun

Best klæddu Íslendingarnir árið 2022

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Lífið á Vísi fékk til sín hóp álitsgjafa til að velja best klæddu Íslendinga ársins 2022.
Lífið á Vísi fékk til sín hóp álitsgjafa til að velja best klæddu Íslendinga ársins 2022.

Litagleði eða svart og hvítt? Látlaust eða áberandi? Klæðaburður er fjölbreytt listform sem getur með sanni dreift gleði til hvers og eins og öll eigum við það sameiginlegt að búa yfir persónulegum stíl, þó hann geti verið mis mikið úthugsaður. 

Blaðamaður Lífsins fékk til sín hóp álitsgjafa við að velja best klæddu Íslendingana 2022, þar sem margir skinu skærar en nokkru sinni fyrr við hin ýmsu tilefni á árinu sem er að líða. Listinn er að sjálfsögðu langt frá því að vera tæmandi en býr yfir hópi margvíslegra einstaklinga sem nýta klæðaburð sem tjáningarform á einstaka vegu og vöktu athygli fyrir það árið 2022.

Saga Sigurðardóttir, listakona, ljósmyndari og leikstjóri

„Það væri ekki hægt að gera lista yfir best klædda fólk Íslands án þess að nefna Sögu. Stíllinn hennar er í raun og veru fyrir mér eins og listaverk, enda listakona í húð og hár. Hún er vintage drottning með eflaust eitt fallegasta safn af flíkum á landinu, litaglöð og algjör töffari. Endalaus innblástur.“

Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands og athafnakona

Dorrit er algjör tískugyðja.Getty/ David M. Benett

„Dorrit er eins og drottning alla daga. Henni tekst að líta út eins og hefðarfrú úr bíómynd hvert sem hún fer.“

Dorrit veit hvað hún syngur þegar það kemur að klæðaburði. Hér er hún stödd í Svíþjóð að fagna 70 ára afmæli sænska konungsins Carls Gustafs.Samir Hussein/WireImage/Getty

Bergur Guðna, fatahönnuður

„Bergur er uppáhalds tískuprinsinn minn. Alveg frá því að við unnum saman í JÖR í gamla daga þá hefur hann alltaf haft sinn einstaka, töff Bergs-stíl sem er skemmtilega öðruvísi og á móti straumnum. Í dag starfar hann hjá 66°Norður og sér þar um allt tískutengt, frá hönnun og listrænni stjórnun yfir í stíliseringu. Mér finnst geggjað að sjá hvernig áhrif hann hefur þar á virt og rótgróið íslenskt vörumerki.“

Álfgrímur Aðalsteinsson, TikTok stjarna og tónlistarmaður

„Hann lætur fátt stöðva sig hvað útlit varðar og setur staðalímyndir kynjanna ekki fyrir sig þegar kemur að því að setja saman lúkk, sem er akkúrat það sem fæstir íslenskir strákar þora að gera. Útkoman er skemmtilega mikið „núna“ og vonandi að fleiri strákar taki sér það til fyrirmyndar.“

Bríet Isis Elfar, tónlistarkona, súperstjarna og Idol dómari

„Bríet fer sínar eigin leiðir í vali á fötum bæði á sviði og dags daglega. Klæðist mikið fötum frá ungum og upprennandi hönnuðum og ein af þessum sem að klæðist fötunum, ekki öfugt. Sama hversu mikil eða óvænt lúkkin eru gleypa þau hana aldrei og ákveðin afslöppun í bland við sjálfstraust skín alltaf í gegn.“

Patrekur Jaime, raunveruleikastjarna

„Patrekur er flottur í öllu sem hann klæðist og hikar ekki við að fara eigin leiðir. Klæðist oft dásamlegum fötum frá Hildi Yeoman sem fara honum ótrúlega vel. Litríkur og glitrandi með fab abs sem fá gjarna að njóta sín.“

Ármann Reynisson, rithöfundur og lífskúnstner

Ármann Reynisson ber hattana vel.Dóra Júlía/Vísir

„Ármann er alltaf elegant og bjartur í tauinu. Hann vandar sig vel í klæðavali og klæðir sig alltaf vel eftir tilefninu.“

Júlía Grønvaldt Björnsdóttir, stílisti og listrænn stjórnandi

„Nett pía. Hún leikur sér að stílnum og er greinilega með gott auga fyrir góðu vintage. Hún er ófeimin við að prufa allskonar og maður getur alltaf fundið innblástur frá klæðaburðinum hennar. Ef ég væri gella þá væri ég eins og hún.“

Edda Guðmundsdóttir, stílisti

„Edda er með mjög afgerandi stíl. Það er erfitt að taka ekki eftir henni þar sem hún tekur miklar áhættur, klæðist sterkum litum og mynstrum og blandar saman óvæntum hlutum sem einhvern veginn ganga alltaf upp og koma svo skemmtilega út. Alveg einstök.“

Daníel Ágúst, tónlistarmaður, Idol dómari og meðlimur hljómsveitanna Gusgus og Nýdönsk

„Það er svo gaman þegar fólk fer út fyrir boxið í klæðaburði á Íslandi og þorir. Ég sá hann á tónleikum í Eldborg um daginn í geggjuðu ljósgrænu suiti og innanundir vestið var með bleiku baki með printi á. Svo fallegt outfit sem hann bar vel. Þó að hann fari út fyrir boxið þá eru fötin fallega sniðin, sem mér finnst persónulega gríðarlega mikilvægt atriði þegar kemur að karlmannsfötum. Icon.“

Mars, eðlisfræðinemandi, listamaður og greinahöfundur

„Hán leikur sér með staðalímyndir, hristir vel upp í þeim og er alltaf einstakt þegar það kemur að klæðaburði. Allt frá mikilli litagleði yfir í stílhreinni, afslappaðan, chic og parísarlegan skólabúningastíl, Mars tekst alltaf að fara eigin leiðir í sínum persónulega stíl og er alltaf smart.“ 

Edda Andrésdóttir, fyrrum fréttakona og eilíf tískudrottning

Edda Andrésdóttir ber af í klæðaburði.Hulda Margrét/Vísir

„Ef hún væri bresk hefði hún fengið titilinn Lady Edda, þó væri ekki nema vegna klæðaburðar.“

Magnús Jóhann Ragnarsson, píanóleikari

„Alltaf stílhreinn með afgerandi stíl og tekst að vera bæði mjög retro og módern á sama tíma í klæðaburði.“

Tómas Urbancic, vörumerkja og sölustjóri hjá Now Agency

„Sá sem mun leggja línurnar fyrir íslenska tísku næstu ár. Hann hefur glöggt auga fyrir nýjum tískustraumum og óhræddur við að prófa nýja hluti.“

Hildur Hafstein, skartgripahönnuður

„Hildur er alltaf glæsileg til fara. Stíllinn hennar Hildar er einkennandi af litum og hún lýsir upp skammdegið með björtum og litríkum flíkum. Mismunandi yfirhafnir, fallegir trefla og feldar sem setja toppinn yfir i-ið.“

Eva Katrín Baldursdóttir, verslunareigandi

„Eva Katrín er algjör fyrirmynd þegar það kemur að stíl og tísku. Hún er eigandi fallegu búðarinnar Andrá á Laugavegi og hefur lifað og hrærst árum saman í tískuheiminum - það sést líka á hennar einstaka auga fyrir fjörugum og djörfum stíl sem er á sama tíma tímalaus og kvenlegur, einhver töfrablanda sem ég dýrka. Eva er klárlega mitt fyrsta símtal þegar ég þarf að tíska mig í gang.“

Díana Breckmann, stílisti

„Díana, konan sem er svo oft á bak við klæðaburð Æði strákanna, býr yfir ótrúlega töffaralegum stíl sem er á sama tíma svo skvísulegur. Stíllinn hennar er svona blanda af „over the top“ og klassískum flíkum, hún er ALLTAF töff til fara jafnvel þó hún sé að bara að endurvinna dósir!“ 

Margrét Rán, tónlistarkona

„Margrét Rán er mikill töffari sem og sjarmatröll sem endurspeglast í einstökum stíl hennar hvert sem hún fer. Hún blandar á listrænan hátt saman litum og munstrum við einfaldari flíkur og tekst að vera bæði formlega og afslappað klædd á sama tíma. Það má segja að útkoman sé skilgreiningin á því að vera kúl.“

Ragnhildur Gísladóttir, tónlistarkona

Ragnhildur Gísladóttir er þekkt fyrir einstakan og glæsilegan klæðaburð.vísir/vilhelm

„Alltaf klædd eins og rokkstjarna. Einu sinni var ég með henni í tískuboði þar sem hún var að máta stórglæsilegan rauðan kjól og ég sagði að þessi yrði örugglega flottur á sviði. Þá sagði hún eitthvað í þá áttina að hann væri líka tilvalinn fyrir hversdagslegar athafnir eins og að fara út í búð. Algjört icon.“ 

Logi Pedro, tónlistarmaður og hönnuður

„Logi er alltaf stílhreinn og töff og nokkrum skrefum á undan þegar það kemur að tískunni, án þess að virðast hafa neitt fyrir því. Svo er hann að fara nýjar og ótrúlega spennandi leiðir í hönnunarheiminum sem verður gaman að fylgjast betur með á komandi tímum.“ 

Daníel Örn Hinriksson, hágreiðslumaður

„Danni er geggjuð týpa. Hikar ekki við að fara ótroðnar slóðir og er glæsilegur í gúmmístígvélum og smoking en er sætastur í hundabuxunum sem ég keypti i Noregi.“

Daníel í sænsku hundabuxunum hér ásamt eiginmanni sínum Svavari Erni.Facebook @daniel.o.hinriksson

Egill Ásbjarnarson, eigandi SuitUp

„Framúrskarandi fágaður til fara alla daga. Kaupmaðurinn sem er bókstaflega gangandi auglýsing fyrir fyrirtækið sitt SuitUp og hvetur alla til þess að versla við sig óbeint með smekklegum klæðaburði frá degi til dags.“

Árni Páll Árnason, Herra Hnetusmjör, rappari og Idol dómari

„Hvort sem hann klæðist einungis hvítum bol og gullkeðju eða Versace frá toppi til táar er það óneitanleg staðreynd að maðurinn kann að setja saman „head-turning“ outfit sem allir taka eftir.“

Kamilla Einarsdóttir, rithöfundur

„Hún er með skemmtilegan stíl, oft í grófgerðum skóm á móti blúndum, yfirleitt alltaf svartklædd. Hún myndi örugglega sjálf segjast vera í svörtu í stíl við sálina hennar en það leynist nú engum að sálin hennar er fagurgul eins og sólin.“

Halldóra Sif Guðlaugsdóttir, fatahönnuður og eigandi Sif Benedicta

„Halldóra Sif vekur athygli hvert sem hún fer! Hún veitir mér mikinn innblástur í að þora að klæðast fleiri litum og mynstrum. Hún er einstaklega góð í að para flíkum saman og búa til skemmtileg outfit sem maður myndi ekki halda að passi saman, en gerir það samt. Skartgripirnir setja síðan punktinn yfir i-ið. Það sem heillar mig sérstaklega mikið er áherslan á vönduð efni, vintage flíkur og falleg snið. Hún sést alltaf í gæða flíkum sem endast lengi og eru fallega sniðin en samt öðruvísi, svo flott!“

Elísabet Gunnarsdóttir, áhrifavaldur og athafnakona

„Ég veit að það er altalað að hún sé tískuskvísa Íslands, en það var sérstaklega skemmtilegt að fylgjast með outfittunum hennar á óléttunni. Það er sko alveg hægt að vera ólétt og megaskvísa! Croptop, falleg óléttubumba og highwaist buxur – já takk! Hún er með töffaralegan stíl sem sameinar klassísku flíkurnar og það sem er inn hverju sinni, einfalt en skvísulegt.“

Aðrir sem fengu tilnefningu:

Björk Guðmundsdóttir, Birnir Sigurðsson, Skúli Hólm Hauksson, Marsibil Sól Þórarinsdóttir Blöndal, Urður Örlygsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir, Kristín Pétursdóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, Ólafia Guðrún Kristmundsdóttir, Rós Kristjánsdóttir, Pétur í Boss, María Th. Ólafsdóttir, Anna Maggý, Logi Þorvaldsson, Agnes Björt, Ólöf Örvarsdóttir, María Hrund Marinósdóttir, Guðlaug Sóley (Gugusar), Katrín Alda, Dr. Þór Sigfússon, Gunnþórunn Jónsdóttir, Daníel Örn Hinriksson, JóiPé, Guðjón Guðmundsson, Sylvía Lovetank, Tatiana Hallgrímsdóttir, Hanna Kristín Birgisdóttir.

Álitsgjafar:

Anna Þóra Björnsdóttir, Arnar Már Davíðsson, Ása Ninna Pétursdóttir, Ásthildur Emma Ástvaldsdóttir, Ásthildur Bára Jensdóttir, Bára Guðmundsdóttir, Birna Rún Kolbeinsdóttir, Edda Konráðsdóttir, Elma Rut Valtýsdóttir, Elísabet Hanna, Hildur Gunnlaugsdóttir, Ísak Emanúel, Sindri Sindrason, Sindri Snær Einarsson, Snorri Ásmundsson, Snorri Egholm, Sóley Kristjánsdóttir, Sylvía Rut Sigfúsdóttir, Vaka Njálsdóttir, Vaka Vigfúsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×