Handbolti

Valskonur ekki í vandræðum með HK

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mariam Eradze var frábær í liði Vals.
Mariam Eradze var frábær í liði Vals. Vísir/Vilhelm

Valur vann öruggan átta marka sigur er liðið heimsótti HK í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, 20-28.

Nokkuð jafnræði var með liðunum lengst af í síðari hálfleik, en gestirnir í Val tóku völdin þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og fóru með fjögurra marka forskot inn til búningsherbergja, staðan 11-15.

Valskonur juku svo forskot sitt í síðari hálfleik og hleyptu heimakonum aldrei nálægt sér. Liðið vann að lokum öruggan átta marka sigur, 20-28.

Mariam Era­dze var markahæst í liði Vals með átta mörk, en Lilja Ágústs­dótt­ir og Þórey Anna Ásgeirs­dótt­ir skoruðu fimm mörk hvor fyr­ir liðið. Inga Dís Jó­hanns­dótt­ir var marka­hæst í liði HK með fimm mörk.

Valskonur tróna því enn á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir sex leiki. HK er hins vegar enn á botninum án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×