EddezeNNN í essinu sínu í sigri gegn SAGA

Snorri Rafn Hallsson skrifar
eddi

Dusty hefur verið í nokkrum vandræðum undanfarið og sátu í þriðja sæti eftir 16–6 tap gegn NÚ. SAGA hefur ekki náð sér á flug á tímabilinu og var því í 8. sæti með 6 stig þegar liðin mættust í Dust 2 kortinu.

Dusty hafði betur í hnífalotunni og byrjaði leikinn í vörn. SAGA var ekki lengi að koma sprengjunni fyrir en innan skamms voru Thor og Skoon einu leikmennirnir eftir. Thor hafði betur og náði að aftengja sprengjuna. Í næstu lotum þar á eftir kom SAGA sprengjunni fyrir og tókst að verja hana og komast í 3–1.

Dusty náði þó fljótlega yfirhöndinni í leiknum. Þreföld fella frá EddezeNNN jafnaði leika og Thor kom Dusty yfir. Thor leiddi Dusty í vörninni með vappanum á meðan ADHD var í bullandi veseni. WZRD langhittnastur af leikmönnum SAGA og hélt liðinu á floti.

Staða í hálfleik: SAGA 6 – 9 Dusty

Sóknarleikur SAGA hafði ekki verið sérlega góður, en liðið tók aðeins við sér í vörninni. SAGA jafnaði í upphafi síðari hálfleiks og enn var það WZRD sem leiddi liðið ásamt Zerq og Skoon.

Dusty var hins vegar ekki á því að láta SAGA leggja sig og komst aftur yfir eftir erfiða sparlotu. Leikmenn Dusty voru nokkuð jafnir, léku vel hver af öðrum og fóru hægt og rólega á longið til að ná stjórn á kortinu og komast í 12–9.

Eftir það var leikurinn kaflaskiptur þar sem hvort lið um sig vann þrjár lotur í röð. EddezeNNN tók forystuna hjá Dusty en WZRD 30-bombaði fyrir SAGA í 28. lotu til að slá endalokunum á frest. Í næstu lotu var það þó Bóndi sem kláraði leikinn fyrir Dusty.

Lokastaða: SAGA 13 – 16 Dusty

Næstu leikir liðanna:

  • Ármann–SAGA, fimmtudaginn 10. nóv, kl. 19.30
  • Dusty–Þór, fimmtudaginn 10. nóv, kl. 21.30

Sýnt verður frá leikjunum í beinni á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Blikarnir burstuðu SAGA

Breiðablik var á hraðleið upp stigatöfluna þegar liðið tók á móti SAGA í Nuke.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira