Neytendur

Dökku litirnir horfnir: „Finnst þetta bara vera lé­leg af­sökun“

Margrét Björk Jónsdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa
Vala Emanuela Reynisdóttir á í erfiðleikum með að finna förðunarvörur við hæfi hér á landi.
Vala Emanuela Reynisdóttir á í erfiðleikum með að finna förðunarvörur við hæfi hér á landi. Gunnlöð Jóna

Vala Emanuela Reynisdóttir upplifir erfiðleika við að finna förðunarvörur sem henta sér hér á landi. Vala, sem er dökk á hörund, segist hingað til hafa geta keypt sér farða sem hentar en nú sé búið að taka þá úr sölu. Framkvæmdastjóri Danól segir fyrirtækið alltaf hafa fjölbreytileika í huga.

Vala birti færslu á Twitter á dögunum þar sem hún tjáði sig um málið. Hún hefur að eigin sögn alltaf haft áhuga á förðun og því að mála sig og hefur hingað til getað keypt sér förðunarvörur hér á landi.

„Ég hef yfirleitt keypt mér farða frá NYX, það hefur alltaf verið gott úrval af litum þar. En svo fór ég á miðnæturopnun í Kringluna um daginn og ætlaði að kaupa mér snyrtivörur á afslætti í Hagkaup en tók þá eftir að minn litur og allir dökku litirnir voru horfnir. En allir ljósu litirnir voru til,“ segir Vala.

Vala hefur eftir vini sínum sem starfar í Hagkaup að ákveðið hafi verið að hætta með þessa liti í sölu þar sem þeir seldust illa.

Farðarnir frá NYX eru framleiddir í fjölbreyttum og fjölmörgum litatónum. En þeir eru ekki allir fáanlegir hér á landi.NYX

Telja að varan sé ekki lengur í framleiðslu

Fréttastofa hafði samband við Danól, heildsölu sem sér um innflutning og sölu á fjölmörgum snyrtivörum sem seldar eru á Íslandi, meðal annars NYX. María Jóna Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri Danól, segir í skriflegu svari að „henni þyki leitt að leitt að stúlkan sem um ræðir hafi upplifað að vara sem hentaði henni hafi ekki verið til, en ástæðan er alls ekki sú að varan sem um ræðir hafi ekki selst vel.“

María segist telja að varan sem Vala spurði um sé ekki lengur í framleiðslu, enda séu gerðar reglulegar breytingar á vöruúrvali hjá framleiðanda.

„Hins vegar eru fjölmargir aðrir möguleikar í boði og í okkar vörulínu eru litir fyrir alla húðliti í förðum, hyljurum og púðri, meira að segja í sólarpúðri, kinnalitum og fleiru. Við höfum alltaf fjölbreytileika í huga og svörum ætíð kröfum neytenda. Við hjá Danól erum öll af vilja gerð til að aðstoða okkar viðskiptavini og við munum bæta enn frekar í að upplýsa starfsfólk verslana um þá fjölbreyttu möguleika sem eru til staðar,“ segir María.

Lélegar afsakanir

Vala gefur lítið fyrir þessa útskýringu. „Ég veit það fyrir víst að þetta er ekki rétt“, segir hún. 

„NYX er enn þá að framleiða þessa dökku liti og hafa alltaf verið með þá. Það er hægt að kaupa þessa liti á netinu og til dæmis í Danmörku. Mér finnst þetta bara vera léleg afsökun. Ég veit vel að þessir litir seljast ekki jafn vel,“ segir Vala. Hún bendir á að mikill meirihluti landsmanna sé hvítur.

„En það ættu samt að vera möguleikar í boði fyrir þá sem eru ekki hvítir. Ég á ekki að þurfa að fara á netið til að panta mér farða og bíða í tvær vikur til að geta málað mig. Það ætti bara að laga þetta en ekki koma með endalausar lélegar afsakanir.“



„Valkostirnir eru margir"

Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups hafði heyrt af málinu þegar Fréttastofa leitaði viðbragða hjá honum.

„Við tókum umræðuna innanhúss á dögunum. Niðurstaðan var í raun þessi; við erum með marga valkosti fyrir fólk með mismunandi húðlit þó það sé mögulega einhver litur ekki til þann daginn í ákveðnu merki. En það sem við þurfum að standa okkur betur við er að vísa viðskiptavinum á önnur merki og aðra valkosti,“ segir Sigurður.

Hann segir örlítið erfiðara að halda úti vörum sem þessum þar sem fólk með dekkri húðlit sé auðvitað í minnihlutahóp á Íslandi. 

„En þetta á bara við um svo margt í kaupmennskunni, við erum endalaust, ekki bara í snyrtivörum, heldur í matvörum og hinu og þessu að flytja inn vörur og kúnninn gefur okkur svo ábendingar um hvað hann vill og hvað ekki. Valkostirnir eru margir. En þessir hópar lenda í því eins og aðrir að varan sem þeir kaupa venjulega var ekki til. Bara eins og með uppáhalds sælgætið þitt, þú getur lent í því að það sé allt í einu ekki til,“ segir Sigurður Reynaldsson.

Ætlar að fara með þetta lengra

Vala er í hópi fólks sem kalla sig Antirasistarnir. Á Instagram síðu hópsins segir í lýsingu að hópurinn sé fyrst og fremst „vettvangur fyrir raddir litaðra einstaklinga.“ 

Vala segir hópinn ætla að fara með þetta mál lengra. 

„Ég hef heyrt af fleirum sem eru í vandræðum með að kaupa sér „makeup“ á Íslandi. Vinkona mín sem er dekkri en ég er í miklum vandræðum. Antirasistarnir munu skrifa bréf um þetta málefni og koma þessu meira á framfæri,“ segir Vala Emanuela að lokum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×