Innlent

Seldi fyrst, stal svo en afhenti aldrei góssið

Bjarki Sigurðsson skrifar
Héraðsdómur Suðurlands er staðsettur í Miðgarði á Selfossi.
Héraðsdómur Suðurlands er staðsettur í Miðgarði á Selfossi. Vísir/Vilhelm

Rúmlega tvítugur karlmaður var á mánudaginn dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir þjófnað, fjársvik og peningaþvætti. Einkaréttarkrafa Íslenskra aðalverktaka var felld niður þar sem enginn á þeirra vegum sótti þing við þingfestingu málsins.

Maðurinn var ákærður þann 9. febrúar síðastliðinn fyrir brot sín. Í ákærunni er honum gefið að sök að hafa í tvígang farið inn á vinnusvæði Íslenskra aðalverktaka við Gljúfurholtsá við Suðurlandsveg í Ölfusi og stolið þaðan samtals 166 stykkjum af Doka-plötum. Plöturnar eru af stærðinni 50 x 300 sentimetrar og áætlað verðmæti þeirra rúmlega ein og hálf milljón króna.

Skömmu áður en hann stal plötunum hafði hann auglýst svipaðar plötur til sölu á Facebook undir notendanafninu „Ás Byggingar Og Iðnaður“. Annar maður samþykkti að kaupa 110 stykki af plötunum og eitt þúsund zetur fyrir 317 þúsund króna.

Doka plötur eru notaðar í byggingariðnaði.Doka

Sama kvöld og hann fékk greitt frá manninum sem vildi kaupa plöturnar fór hann í hraðbanka í Hveragerði og tók 250 þúsund krónur út af bankareikningi sínum. Þannig svipti hann löglegum eiganda þeirra möguleika á að endurheimta fjármunina. Einnig var hann ákærður fyrir að hafa nota þær 67 þúsund krónur sem eftir voru inni á bankareikning hans.  

Maðurinn kom fyrir dómi þann 7. október síðastliðinn og viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru.  

Samkvæmt sakavottorði mannsins hafði hann ellefu sinnum áður sætt refsingu, þar af fimm sinnum vegna auðgunarbrota, nú síðast í maí árið 2021. Með teknu tilliti til sakaferils hans var metið sem svo að ekki þætti efni til að skilorðsbinda refsingu mannsins. Hann þarf því að dvelja í 45 daga í fangelsi. 

Þá þarf hann að greiða allan sakarkostnað, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu 85 þúsund krónum. Einnig þarf hann að greiða þóknun skipaðs verjanda síns sem hljóðar upp á 675 þúsund krónur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×