Jól

Jóla­stöðin er komin í loftið

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Jólabörn geta nú hlustað á jólalög allan sólarhringinn á Jólastöðinni 96,7.
Jólabörn geta nú hlustað á jólalög allan sólarhringinn á Jólastöðinni 96,7. Getty/sveitika

Nóvember er genginn í garð og það þýðir aðeins eitt - Jólastöð LéttBylgjunnar er komin í loftið.

Ár hvert breytist útvarpsstöðin LéttBylgjan 96,7 í Jólastöðina sem spilar jólalög allan sólarhringinn. Það má því ætla að mörg jólabörnin hafi glaðst í umferðinni í morgun við að heyra fyrstu jólalögin óma í útvarpinu.

Hrekkjavakan er liðin og því styttist óðum í að graskerum og beinagrindum verði skipt út fyrir jólasveina og hnotubrjóta. Jólaseríurnar eru þó nú þegar farnar að skjóta upp kollinum víða. Þá eru jólin einnig mætt í stórverslanirnar IKEA og Costco.

Einhverjum kann ef til vill að finnast full snemmt að byrja að hlusta á jólatónlist í nóvember. Þeim bendum við á aðrar útvarpsstöðvar á borð við FM957, Bylgjuna og X977, þar sem hlustendur ættu að vera óhultir fyrir jólatónlist í bili.

Ykkur hin hvetjum við til þess að hækka í græjunum og njóta Jólastöðvarinnar í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Jólin láta á sér kræla í Costco

Í dag, 1. september eru 114 dagar til jóla og þó einhverjir séu eflaust enn að jafna sig eftir nýliðið sumarfrí er jólaundirbúningur hafinn á hinum ýmsu vígstöðvum, til dæmis í versluninni Costco.








×