Innherji

Spak­ur Invest naut góðs af styrk­ing­u Band­a­ríkj­a­dals

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Spakur Invest leggur áherslu á Bandaríkjamarkað og eignir í Bandaríkjadal. Stjórenndur sjóðsins telja að Bandaríkin séu áhættuminni fjárfestingakostur.
Spakur Invest leggur áherslu á Bandaríkjamarkað og eignir í Bandaríkjadal. Stjórenndur sjóðsins telja að Bandaríkin séu áhættuminni fjárfestingakostur. Mynd/ afp.

Ágjöf á fjármálamörkuðum vegna óvissu í alþjóðlegu efnahagslífi hefur leitt þess að hlutabréfasjóðir, innlendir sem erlendir, hafa skilað tapi að undanförnu. Fjárfestingasjóðurinn Spakur Invest, sem fjárfestir einkum í bandarískum hlutabréfum, státaði af skástu ávöxtun allra innlendra hlutabréfasjóða sem fjárfesta aðeins erlendis. Ávöxtun sjóðanna frá áramótum var neikvæð um 13 til 31 prósent. Á sama tíma lækkaði íslenska úrvalsvísitalan um 27 prósent.


Tengdar fréttir

Flýja hlutabréf vegna óvissu og lækkana á erlendum mörkuðum

Þótt efnahagshorfurnar hér á landi séu um margt betri en í okkar helstu viðskiptalöndum þá hafa verðlækkanir á íslenska hlutabréfamarkaðinum í mörgum tilfellum verið meiri en þekkist erlendis og er Úrvalsvísitalan niður um 15 prósent frá því um miðjan september. Áframhaldandi sala erlendra sjóða, aukin skortsala og hrina veðkalla gagnvart skuldsettum fjárfestum skýrir meðal annars þróunina að undanförnu, að sögn viðmælenda Innherja.

Vísbendingar um að markaðurinn hafi „tekið alltof skarpa dýfu“

Staðan á hlutabréfamarkaði hefur umturnast á síðustu tólf mánuðum. Fyrir um ári mátti sjá merki þess að markaðurinn væri búinn að ofrísa, meðal annars út frá þróun peningamagns í umferð, en núna eru vísbendingar um hið gagnstæða og verðmöt gefa til kynna að meirihluti félaga í Kauphöllinni séu verulega vanmetin, að sögn hlutabréfagreinenda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×