Innherji

Á­formar að styrkja fjár­hags­stöðuna eftir helmings­lækkun á Marel

Hörður Ægisson skrifar
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, og Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyrist Invest. Samanlagt fara þeir feðgarnir með um 39 prósenta hlut í fjárfestingafélaginu sem er stærsti hluthafi Marels með tæplega fimmtungshlut.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, og Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyrist Invest. Samanlagt fara þeir feðgarnir með um 39 prósenta hlut í fjárfestingafélaginu sem er stærsti hluthafi Marels með tæplega fimmtungshlut.

Eyrir Invest, langsamlega stærsti hluthafi Marels, vinnur nú að því með ráðgjöfum að styrkja eiginfjárstöðu sína frekar þar sem til greina kemur að fá inn nýtt hlutafé í félagið, samkvæmt heimildum Innherja. Stjórnarformaður fjárfestingafélagsins segir að verið sé að „skoða fjármögnun“ Eyris en telur að sama skapi að hlutabréfaverð Marels sé búið að lækka „óeðlilega“ mikið að undanförnu.


Tengdar fréttir

Óbeinn hlutur Landsbankans í Marel lækkað í virði um sex milljarða á árinu

Mikið verðfall á gengi hlutabréfa Marels, sem hefur lækkað um 26 prósent frá áramótum, þýðir að óbeinn eignarhlutur Landsbankans í félaginu hefur fallið í virði úr 23,5 milljörðum króna í 17,3 milljarða á fjórum og hálfum mánuði, eða um liðlega 6,2 milljarða. Meira en 250 milljarðar hafa samtals þurrkast út af markaðsvirði Marels frá því í lok ágúst í fyrra þegar hlutabréfaverð félagsins var hvað hæst.

Stærsta sjóðastýringarfyrirtæki heims keypti í Marel fyrir á fjórða milljarð

Vísitölusjóðir bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Vanguard keyptu nánast öll þau bréf í Marel sem voru seld í sérstöku lokunaruppboði í Kauphöllinni síðasta föstudag í aðdraganda þess að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE vísitölufyrirtækinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×