Rafíþróttir

Th0rsteinnF: Kynntist CS í gegnum StebbaC0C0

Snorri Rafn Hallsson skrifar
Th0rsteinnF

Leikmaður vikunnar er nýr liður á Vísi þar sem lesendur fá að kynnast einum leikmanni í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO í hverri umferð.

Það er hinn 22 ára Þorsteinn Friðfinnsson, eða Th0rsteinnF, sem situr fyrir svörum þessa vikuna. Þorsteinn býr í Reykjavík og skilgreinir sig fyrst og fremst sem rafíþróttamann. Hann æfði fótbolta í 10 ár, en nú er það Counter Strike: Global Offensive sem á hug hans allan.

Þorsteinn hefur oftar en einu sinni orðið stórmeistari í CS:GO hér á landi með liði sínu, Dusty, en þar tók hann við vappahlutverkinu á síðasta tímabili og leysti það afar vel.

Hvaðan kemur leiknafnið?

Nickið kemur frá KennyS sem heitir Kenny Schrub þannig ég ákvað að herma eftir því og breyta nafninu mínu Þorsteinn Friðfinnsson í th0rsteinnf en svo stytti nickið í TH0R fyrir erlenda lýsendur sem eiga stundum erfitt með að segja th0rsteinnf.

Uppáhalds vopn?

Awp

Hversu mikið spilar þú CS:GO?

Ég æfi með liðinu 5 sinnum í viku í 2-3 tíma á dag og ef ég hef tíma þá tek ég kannski 1 til 2 FaceIt leiki ofan á það.

Hvernig atvikaðist það að þú fórst að spila CS:GO?

Ég byrjaði að spila CS: Source með núverandi liðsfélaga mínum StebbaC0C0 sem kynnti mig fyrir leiknum þegar við vorum 8 eða 9 ára. Svo þegar CS:GO kom út þá ákvað ég að prófa hann og varð ástfanginn strax.

Hvaða leikmanns lítur þú mest upp til?

S1mple er augljósi kosturinn þar sem hann er besti leikmaðurinn í sögu Counter Strike að mínu mati en ég verð að gefa shoutout á ScreaM sem var í uppáhaldi þegar ég byrjaði í CS:GO.

Hvernig kemur þú þér í gírinn fyrir leiki?

Hlusta á peppandi tónlist, tek 30 mínútur í aim_botz og 30 mínútur í deathmatch og borða alltaf 60-90 mínútum fyrir leik.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur lent í í CS:GO?

Veit ekki alveg, kannski það að spila Counter Strike á sviði í Háskólabíó...?

Uppáhalds leikur fyrir utan CS:GO:?

Ég spila enga aðra leiki núna en áður fyrr spilaði ég Rocket League mikið.

Hvernig finnst þér best að slappa af?

Með því að fara í sund og infra-rauða sánu.

Áhugamál utan rafíþrótta?

Fótbolti, ég horfi á alla United leiki.

Horfir fjölskyldan þín á leikina?

Þau horfa aðallega bara á stærstu leikina.

Hægt er að fylgjast með ThorsteiniF á InstagramTwitter og Twitch.

Næsti leikur Th0rsteinsF með Dusty fer fram næsta fimmtudag klukkan 20:30 þegar liðið mætir Fylki.

Sýnt verður frá leiknum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×